Keppni í fjórgangi langt komin
Nils og Flaumur á Meistaramóti Hollendinga Mynd: Josefine van Vessem
Icehorse Festival byrjaði í morgun í Herning og hófst á keppni í fjórgangi V2. Þar standa efstar eftir forkeppni Lisa La Cour á Leista frá Hólum og Caroline Holvad á Eldi fra Bækgård jafnar með 6,43 í einkunn.
Forkeppni í fjórgangi V1 er næstum hálfnuð en þegar þetta er skrifað eiga 37 keppendur eftir að ríða í braut. Eins og staðan er núna leiðir Nils Christian Larsen á Flaumi frá Sólvangi með 7,90 í einkunn. Önnur er Christina Lund á Lukku-Blesa frá Selfossi með 7,43 og þriðja er Anne Stine Haugen á Hæmi frá Hyldsbæk með 7,20 í einkunn.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá niðurstöður úr fjórgangi V2 og topp 10 í fjórgangi V1 eins og hún er nú. Hægt er að fylgjast með lifandi niðurstöðum HÉR
FJÓRGANGUR V1 – topp 10
1. Nils Christian Larsen – Flaumur frá Sólvangi 7,90
2. Christina Lund – Lukku-Blesi frá Selfossi – 7,43
3. Anne Stine Haugen – Hæmir fra Hyldsbæk – 7,20
4. Filippa Montan – Kristall frá Jaðri – 7,13
5. Jolly Schrenk – Smáralind vom Hegebusch – 7,00
6. Hans-Christian Løwe – Skvísa fra Vivildgård – 6,93
6. Louise Lofgren – Hástígur Rex Depillsson fran Skormakarns – 6,93
8. Pernille Lyager Møller – Rokkur frá Ytra-Vallholti – 6,90
9. Iben Katrine Andersen – Gideon fra Tømmerby Kær – 6,83
10. Tine Terkildsen – Finnbogi frá Minni-Reykjum – 6,63
Topp 10 – Lifandi niðurstöður HÉR
FJÓRGANGUR V2 – topp 20
1. Lisa La Cour – Leistur frá Hólum – 6,43
1. Caroline Holvad – Eldur fra Bækgård – 6,43
3. Stian Pedersen – Amor fra Jakobsgården – 6,37
3. Steffi Svendsen – Starri fra Teland – 6,37
5. Agnete Præstholm Schneider. – Muni fra Langtved – 6,30
5. Emilie Saaugaard-Haaning – Vaka fra Nr. Tolstrup – 6,30
7. Josefine Hylander Christensen – Ýmir fra Spøttrup Mark – 6,20
8. Lena Becker – Hvammur frá Völlum – 6,10
9. Sigrid Bisgaard Amstrup – Demantur fra Vivildgård – 6,03
10. Anne Askgaard – Frami fra Eskildsminde – 5,97
11. Ella Gundtoft Damgaard – Cesar frá Húsafelli 2 – 5,93
12. Caroline Wehner Wall – Mélnir fra Skovbogaard – 5,90
12. Betina Bruun Martinsen – Magnús fra Bjarup – 5,90
14. Inger Tony Bjørn Hansen – Vonandi frá Strandarhjáleigu – 5,87
14. Victoria Lillelund – Viktor fra Lillelund – 5,87
14. Sara van Doesburg – Boðni frá Sælandi – 5,87
17. Selma Sandahl Kierkegaard – Hrynja fra Haarbygaard – 5,77
17. Karin Gunnarsson – Urður frá Hjarðartúni – 5,77
17. Eva Christine Dahlquist – Rangá frá Ármóti – 5,77
20. Katrine Skrubbeltrang – Fengur frá Miðdal – 5,73
Topp 20 – Heildarniðurstöður HÉR
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH