Keppnistímabilið hér á landi að hefjast
Áhorfendastúkur reiðhalla verða vonandi þéttsetnar þegar keppnistímabilið hefst
Samkvæmt mótaskrá LH að þá verður fyrsta mót ársins haldið föstudaginn 19.janúar, en það er Nýárstölt Léttis á Akureyri. Vetrarmót 1 í Herði Mosfellsbæ og innanhúsmótaröð fer svo fram um helgina.
Þá hlýtur stemningin á meðal hestafólks að aukast jafn og þétt því nú er rétt rúm vika í fyrsta mótið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum en keppt verður í fjórgangi fimmtudagskvöldið 25. janúar í HorseDay höllinni.
Í febrúar verður svo allt komið á fullt með minni og stærri mótum víðs vegar um landið.
| Janúar | |||
| 19. janúar | Nýárstölt | Ungm. og fullorð. | Léttir |
| 20. janúar | Vetrarmót 1 | Hörður | |
| 21. janúar | Innanhússmótaröð Harðar | Fjórgangur V1 | Hörður |
| 25. janúar
|
Meistaradeild Líflands | Fjórgangur V1 | HorseDay höllin |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH