Landsmót 2024 Knapafundur og ráslistar

  • 1. júlí 2022
  • Fréttir
Landsmót hestamanna á Hellu 3 - 10. júlí

Ráslistar eru nú klárir og er hægt að finna þá HÉR og inni á LH kappa appinu.

Knapafundur verður haldin í Rangárhöllinni sunnudaginn 3.júlí kl 11:00. Þar verða almennar upplýsingar og nokkur atriði sem gott er að hafa í huga varandi framgang keppninnar.

Hafi kynbótaknapar eitthvað sem þeir þurfa að spyrja um þá endilega hafið samband við okkur á skrifstofa@landsmot.is svo hægt sé að svara þeim ef einhverjar eru, því kynbótahrossin byrja kl 8:00 sunnudagsmorguninn 3.júlí.

Hér eru nokkur atriði sem viljum koma á framfæri núna þegar æfingartímar eru byrjaðir.

  • Mótið er eitt mót (bæði íþróttakeppni og gæðingakeppni)
  • Riðið verður inn á keppnisvöll á skammhlið sem er beint af upphitunarvelli.
  • Riðið verður út af keppnisvelli á langhlið og þaðan beint í fótaskoðun í Rangárhöllinni.
  • Allir skulu mæta í fótaskoðun líka þeir sem gera ógilda sýningu.
  • Fótaskoðun fer fram eftir keppni en séu knapar í vafa þá er ekkert mál að spyrja fótaskoðun hvort allt sé í lagi fyrir keppni.
  • Skáreim er EKKI leyfð í WR-íþróttakeppnisgreinum (WR reglur FEIF)
  • Skáreim er leyfð í WR-gæðingakeppnisgreinum (Séríslensk regla LH)
  • Uppbeygður hæll á skeifum er ekki leyfður.
  • Stökk í barnaflokki. Ávallt verður hleypt í plúsátt (hleypt í átt að Rangárhöllinni). Þeir sem ríða upp á vinstri hleypa nær áhorfendum. Þeir sem ríða upp á hægri hleypa nær dómurum.

Vonandi gefur þetta einhver svör en einnig væri gott að fá spurningar sendar á motstjori@landsmot.is ef einhverjar eru sem fyrst þannig að knapafundur verði skilvirkur.

Allt er þetta birt með fyrirvara um mannleg misstök.

Með fyrirfram þökk
Ólafur Þórisson
mótstjóri

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar