Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Knapaskipti í liði Hestvits/Árbakka

  • 19. september 2024
  • Fréttir
Mikil spenna er alltaf fyrir Meistaradeildinni í hestaíþróttum en á þessum tíma er liðaskipan að verða klár. 

Lið Hestvit/Árbakka vann liðakeppnina í fyrra en liðsmenn voru þau Gústaf Ásgeir Hinriksson, Jóhanna Margrét Snorradóttir, Pierre Sandsten Hoyos, Glódís Rún Sigurðardóttir og Fredrica Fagerlund.

Liðið mun halda áfram í deildinni á næsta ári en Fredrica Fagerlund hefur ákveðið að hætta. Í staðinn fyrir hana kemur inn Hinrik Bragason en hann er einn af forsprökkum deildarinnar og hefur verið keppandi í mörg ár. Hinrik hefur átt góðu gengi að fagna á hryssu sinni Trú frá Árbakka en þau kepptu sem villiköttur fyrir lið Hestvit/Árbakka í fyrra.

Lið Hestvit/Árbakka skipa því:

Glódís Rún Sigurðardóttir
Gústaf Ásgeir Hinriksson
Hinrik Bragason
Jóhanna Margrét Snorradóttir
Pierre Sandsten Hoyos.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar