Kosinn nýr formaður og veittar viðurkenningar
Kristín Lárusdóttir tók við viðurkenningu fyrir Svanhildi Guðbrandsdóttur en Svanhildur var tilnefnd sem knapi ársins 2020 og 2021 hjá Kóp.
Aðalfundur hestamannafélagsins Kóps var haldinn í Tungusseli í gær. Að venju voru venjuleg aðalfundarstörf, kosið var um nýjann formann og veitt voru viðurkenningar. Pálína Pálsdóttir var kjörin nýr formaður en hún tekur við af Lilju Hrund Harðardóttur
Kristín Lárusdóttir tók við viðurkenningu fyrir Svanhildi Guðbrandsdóttur en Svanhildur var tilnefnd sem knapi ársins 2020 og 2021 hjá Kóp.
Kristín Ásgeirsdóttir og Sigmar Helgason fengu viðurkenningu fyrir fórnfúst og óeigingjarnt starf í þágu félagsins í gegnum tíðina. Lilja Hrund, fráfarandi formaður, veitir þeim hér viðurkenningu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH