Kronshof special á Alendis
Það styttist heldur betur í fyrsta stórmót þjóðverja, Kronshof Special og það gleður okkur að geta sýnt frá því á Alendis.
Skráningar á mótið hafa farið fram úr vonum, en það eru 630 skráningar og því hörkudagskrá framundan á Kronshof um helgina. Mótið hefst á föstudaginn og úrslit eru riðin á mánudag.
Við eigum von á þekktum nöfnum og pörum, svo dæmi séu nefnd mæta; Flaumur frá Sólvangi, Gustur von Kronshof, Elrir frá Rauðalæk, Austri frá Úlfsstöðum, Evert frá Slippen, Tónn frá Steinnesi, Pistill frá Litlu-Brekku og svo mætti lengi telja.
Dagskrá, niðurstöður og sundurliðun einkunna er að finna HÉR
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH