Landsmót rökrætt á Formannafundi
Líflegar umræður sköpuðust um þróun og stöðu Landsmóts á formannafundi LH sem fram fór í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag.
Á Formannafundi LH voru saman komin formenn og fulltrúar flestallra hestamannafélaga auk fulltrúa annarra starfandi nefnda innan Landssambandsins.
Þar kom m.a. fram í máli Haraldar Gunnarssonar framkvæmdarstjóra Landsmóts að um 7000 mótsgestir hafi verið á Vindheimamelum í sumar, þar sem 1100 hross hafi komið fram en það er mesti fjöldi hrossa frá upphafi mótsins. Hann sagðist hafa verið ánægður með framkvæmd mótsins. Einnig sagði hann að undirbúningur fyrir Landsmót í Reykjavík árið 2012 er komið vel á veg en bráðlega mun Landsmót opna fyrir videogagnabanka á heimasíðu sinni þar sem nálgast má útsendingar síðasta Landsmóts ásamt upptökum frá eldri mótum.
Guðjón Magnússon gjaldkeri Landsmóts ehf. fór yfir fjárhagsstöðu félagsins. Hann sagði neikvæða stöðu eiginfjár Landsmóts ehf. vera 17 milljónir og skipti þar mestu lán sem félagið þurfti að taka eftir frestun mótsins árið 2010. Á árinu horfði í 30 milljón króna tap vegna Landmóts sumarsins en framkvæmdaraðilar mótsins og mótshaldarar hafi skorið niður kostnað sem varð til þess að mótið í ár kom út á núlli. Guðjón færði ennfremur rök fyrir því að taka framkvæmd Landsmóts út fyrir eignahlutafélagsformið og færa það aftur á ábyrgð hestamannafélaganna. Þar hafi félagsleg sjónarmið mesta vægi og virtist myndast nokkur samhugur um það meðal fundarmanna með málflutningi Guðjóns.
Þá tók Sveinbjörn Sveinbjörnsson formaður Landsmótsnefndar LH og BÍ til máls og kynnti niðurstöður skýrslu nefndarinnar ásamt því að Stefán Haraldsson ritari nefndarinnar fór í stuttu máli yfir það sem fram hefði komið í fundarherferð nefndarinnar í kringum landið í haust.
Að þeirri kynningu lokinni tók við hópavinna meðal formanna um málefni Landsmóts, þróun þess og stöðu. Út frá þeim sköpuðust málefnalegar umræður sem að mestu leyti fjölluðu um tíðrædda tillögur nefndarinnar um að halda Landsmót tvisvar á Suðurlandi á móti hverju einu skipti á Norðurlandi. Sýndist sitt hverjum um tillögur nefndarinnar og tóku fjölmargir til máls. Kom þar m.a. að ákveðin urgur væri meðal þeirra félaga sem sótt hafa um Landsmót 2014 vegna seinagangs við að tilkynna hvar mótið verði haldið.
Valið á Landsmótsstað árið 2014 stendur á milli Gaddstaðaflata við Hellu, Vindheimamela í Skagafirði, Melgerðismela í Eyjafirði og Akureyrar. Í máli Haraldar Þórarinssonar kom fram að LH muni tilkynna Landsmótsstaði 2014 og 2016 um næstu mánaðarmót.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH