Suðurlandsdeildin Lið Hemlu/Hrímnis/Strandarhöfuðs

  • 28. mars 2022
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Liðakynning á liðum Suðurlandsdeildarinnar

Áttunda liðið af fjórtán sem við kynnum í vetur er lið Hemlu/Hrímnis/Strandarhöfuðs

UM STYRKTARAÐILA LIÐSINS
Hemla II hrossaræktarbú er staðsett rétt utan við Hvolsvöll, þar er farsæl hrossarækt og er aðal atvinna búsins að temja eigin hross og selja.

Hrímnir er fjölskyldurekið íslenskt fyrirtæki sem framleiðir úrvals hestavörur og -fatnað. Hrímnir deilir ástríðu sinni fyrir íslenska hestinum með vinum sínum og viðskiptavinum og Hrímnir Community fræðsluvefurinn er gjöf til unnenda og reiðmanna íslenska hestsins um allan heim.

Strandarhöfuð er hrossaræktarbú staðsett í Vestur-Landeyjum og í eigu Auðar Möller og Guðmundar Más Stefánssonar. Í Strandarhöfði er rekin tamningastöð, þjálfun, ræktun, kennsla og sala hrossa og í raun allt sem viðkemur hrossum. Á búinu starfa nú þrír tamningamenn, þau Ásmundur Ernir Snorrason, Stella Sólveig Pálmarsdóttir og Selina Bauer. Markmiðið er að rækta fasmikil, hágeng og geðgóð keppnishross.

Liðsstjóri liðsins er Stella Sólveig Pálmarsdóttir, en hún keppir sem atvinnumaður í deildinni:
Nafn: Stella Sólveig Pálmarsdóttir
Aldur: 31
Starfstitill: Konan hans Ása
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Ég fer í parafimi. Svo er ég með góðan fjórgangara og stefni á að mæta í það minnsta með hesta á æfingar í hinar greinarnar svo er bara að sjá hver er bestur fyrir hverja grein 🙂
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Þegar Happadís frá Strandarhöfði fór í dóm í sumar og hlaut 4 x 9,5 og 9,26 fyrir hæfileika sem klárhross! Once in a lifetime moment fyrir mér.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Góður félagsskapur og gaman að vera í svona mótaröð yfir vetrartímann 🙂
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Allavega pottþétt í brekkunni 🙂

Aðrir atvinnumenn liðsins eru:
Nafn: Vignir Siggeirsson
Aldur: 57
Starfstitill: Tamningamaður og bóndi
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Allt nema parafimi
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Það er bara ótrúlega margt, það er nefnilega alltaf svo gaman
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Góður félagsskapur og gaman að stúdera og þjálfa með öðrum
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Alltaf á vellinum!

Nafn: Selina Bauer
Aldur: 26
Starfstitill: Tamningakona og kennari
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Fimmgang og parafimi
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Útskriftardagur frá Háskólanum á Hólum
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Það er gaman að hitta liðsfélaga mína og taka út þjálfunarstand hestanna okkar í sameiningu. Einnig er spennandi að sjá hvernig liðið á eftir að standa sig í keppnisgreinunum.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi á vellinum. Annars í brekkunni að hvetja alla sem ég þekki áfram.

Áhugamenn liðsins eru eftirfarandi:
Nafn: Sanne van Hezel
Aldur: 31
Starfstitill: Er að vinna í Skálakoti
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Reyni að komast í lið í öllum greinum en held að ég er best hestuð fyrir fimmgang
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Þegar ég fór í hestaferð í fyrsta skipti
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Maður leggur meira á sig að reyna vera tilbúin með hesta í öllum greinum. Svo er gaman að kynnast nýju fólki og læra mikið af því.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Brekkunni.

Nafn: Anne Tabea E. Krishnabhakdi
Aldur: 24
Starfstitill: Tamningakona og reiðkennari
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Fer eftir hvað hentar mér og liðinu best þegar kemst að því
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Útskriftardagurinn frá Hólum var mjög skemmtilegur
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Að vera í skemmtilegu liði, setja sér markmið og halda áfram að bæta mig sem reiðmaður
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Sjáum til

Nafn: Carole Herritsch
Aldur: 25
Starfstitill: Horsetrainer / Hestaþjálfari
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? I like fivegait the most but every test is interesting to compete in / Mér líkar mest við fimmgangn en það er spennandi að keppja í öllum greinum.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Riding into the track at my first World Championship 2015 in Herning / Að ríða í braut á mínu fyrsta heimsmeistaramóti í Herning 2015
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Having fun with other great riders in my team / Hafa gaman með öðrum knöpum úr mínu liði
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? It will be definitely quite exciting to be at Landsmót no matter if you are watching or competing / Það verður mjög gaman  að vera á Landsmóti hvort sem þú verður sem áhorfandi eða að keppa.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link