Uppsveitadeildin Lið Lögmannsstofu Ólafs Björnssonar í Uppsveitadeildinni

  • 22. janúar 2024
  • Fréttir
Liðakynning Uppsveitadeildarinnar Flúðasveppa og Jökuls veturinn 2024

Undirbúningur fyrir Uppsveitadeild 2024 er hafin en fyrsta mótið verður 9. febrúar og þá verður keppt í fjórgangi. Deildin hefur hafið liðakynningu og fyrsta liðið sem deildin kynnir til leiks er lið Lögmannsstofu Ólafs Björnssonar sem er nýtt lið í deildinni.

Hér fyrir neðan er liðakynningin á liði Lögmannsstofu Ólafs Björnssonar

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir

22 ára, bý á Selfossi, starfa hjá NPA setri Suðurlands og þjálfa hestana mína þess á milli.

Svavar Jón Bjarnason

38 ára gamall Rafiðnfræðingur sem þjálfar hross í frítíma í Ásakoti í Biskupstungum

Finnur Jóhannesson

27 ára reiðkennari og tamningarmaður. Vinn við tamningar á Torfastöðum og er liðstjóri.

Hannes Brynjar Sigurgeirsson

33 ára sjálfstætt starfandi smiður og bóndi að Ási 2.

Ástríður Magnúsdóttir

Reiðkennari og tamningakona sem ræktar topp hross, hunda, geitur og framtíðarknapa í Ási 2

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link