Lið Þúfna sigraði liðakeppnina 2020
Meistaradeild KS hefst á gæðingafimi þann 2. mars. Fyrsta lið sem kynnt er til leiks í KS deildinni 2022 er Þúfur en Þúfur sigruðu liðakeppnina árið 2020.
Mette Mannseth er liðsstjóri liðsins. Hún er yfirreiðkennari við Háskólann á Hólum og sigurvegari deildarinnar á síðustu tvö ár. Með henni er Gísli Gíslason hrossaræktandi og þjálfari á Þúfum, Lea Busch útskrifaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum og þjálfari á Þúfum, Barbara Wenzl reiðkennari frá Háskólanum á Hólum og þjálfari í Bæ og Bergrún Ingólfsdóttir reiðkennari frá Háskólanum á Hólum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH