Líklegir til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi
Sjóður frá Kirkjubæ hefur náð lágmörkum til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi en hann á 50 sýnd afkvæmi og er með 122 stig í kynbótamati. Knapi: Guðmundur Björgvinsson
Í nóvember á síðasta ári birti Eiðfaxi lista yfir þá hesta sem líklegir væru til að koma fram á næsta Landsmóti með afkvæmahópum. Þar sem kynbótamatið hefur verið endurreiknað ákvað blaðamaður að athuga hvort þessi listi hefði breyst. Þegar stóðhestar sem líklegir eru til heiðursverðlauna eru skoðaðir sést að enginn hestur hefur bæst við í hópinn eftir uppfærsluna á kynbótamatinu. Allir hestarnir hækkuðu í kynbótamati og breytist röðunin lítilega.
Til að stóðhestur hljóti heiðursverðlaun fyrir afkvæmi verður hann að uppfylla tvö skilyrði; 118 stig í kynbótamati og 50 dæmd afkvæmi. Í framhaldi af því að hross hljóta nú tvær aðaleinkunnir, með og án skeiðs, eru stóðhestum sem hljóta 118 stig eða meira í aðaleinkunn kynbótamats án skeið nú líka veitt afkvæmaverðlaun. Áfram verður þó miðað við aðaleinkunn kynbótamatsins þegar hestum er raðað í verðlaunasæti á stórmótum.
Eftirfarandi hestar eru líklegir til að hljóta heiðursverðlaun á Íslandi en þeim er raðað eftir aðaleinkunn kynbótamatsins eins og það stendur nú. Það er þó misjafnt hversu mörg afkvæmi þessarra hesta þurfi að koma til dóms til að þeir nái lágmörkum. Sjóður frá Kirkjubæ hefur nú þegar náð lágmörkum til heiðursverðlauna og fær afkvæmaorð birt í WorldFeng og verður svo verðlaunaðir á næsta Landsmóti, ef hann stenst enn kröfur til afkvæmaverðlauna.
Hér fyrir neðan er listi yfir þá hesta sem líklegir eru til að hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á næsta Landsmóti
| Nafn | Uppruni | Ae. | Ae. án skeiðs | Fj. afkvæma |
| Sjóður | Kirkjubæ |
126 |
123 |
50 |
| Trymbill | Stóra-Ási |
125 |
113 |
42 |
| Eldur | Torfunesi |
124 |
116 |
44 |
| Jarl | Árbæjarhjáleigu |
124 |
117 |
39 |
| Kjerúlf | Kollaleiru |
119 |
123 |
48 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH