Ljóðasamkeppni Eiðfaxa í tilefni dags íslenskrar tungu

  • 16. nóvember 2026
  • Uncategorized @is
Í dag þann 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, er degi íslenskrar tungu fagnað

Okkar eigin fjórfætti sendiherra, íslenski hesturinn, hefur löngum vakið áhuga unnenda hans á öllu því sem tengist Íslandi og þar með tungumálinu. Því til stuðnings hafa nöfn íslenskra hrossa sem skráð eru í ættbók íslenska hestsins þurft að lúta íslenskum málfarsreglum, hvar í heimi sem hrossið er statt eða fætt. Íslenskt hestanafn hefur bæði menningarlegt og markaðslegt gildi fyrir íslenska hestinn og því hefur hestanafnanefnd starfað í þeim tilgangi að framfylgja því að íslensk hross hafi íslenskt nafn. Þannig hafa mörg hundruð þúsund íslenskir hestar, sem staddir eru utan landsteinanna, breitt út íslenskt mál.

Yrkisefni margra íslenskra höfunda hefur löngum verið hestar enda er tign þeirra og glæsileiki ótvíræður og óhætt að halda því fram að þeir séu jafn samofnir menningu vorrar þjóðar og tungumálið sjálft. Jónas Hallgrímsson er þar enginn undantekning og koma hestar fyrir í nokkrum af ljóðum hans, samanber eftirfarandi tilvitnanir;

Fjallið Skjaldbreiður „Ríð ég háan Skjaldbreið skoða, skín á tinda morgunsól, glöðum fágar röðulroða reiðarslóðir, dal og hól.“

Til herra Páls Gaimard „Þú reiðst um fagran fjalladal á fáki vökrum, götu slétta,“

Gunnarshólmi „Svo fara báðir bræður enn um stund. Skeiðfráir jóar hverfa fram að fljóti.“

Í tilefni dagsins stofnar Eiðfaxi til ljóðasamkeppni og eru allir skáldmæltir (í orði, á borði eða skúffu) lesendur Eiðfaxa beðnir um að senda ljóð (eitt eða fleiri erindi) er tengist hestum á netfangið [email protected]. Sérstök matsnefnd mun svo velja besta ljóðið en sigurvegarinn hlýtur að launum verðlaun og birtingu á vef Eiðfaxa. Hægt er að senda ljóð inn til 1.desember nk.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link