Lokadagur skráningar í Gæðingaveislu Sörla og Íshesta
Mynd/dalli.is
Skráningu lýkur í kvöld í Gæðingaveislu hestamannafélagsins Sörla og Íshesta.
“Hér birtast drög að dagskrá mótsins sem hefst á miðvikudaginn kemur.
Drög að dagskrá:
Miðvikudagur, hefst kl.16:00 Tölt, 150m. og 250m. skeið
Fimmtudagur:, hefst kl.16:00 Barna-, unglinga-, og B-flokkur
Föstudagur:, hefst kl.16:00 Ungmenna- og A-flokkur, B-úrslit
Laugardagur: hefst kl.10:00 100. skeið og A-úrslit
Aðrar upplýsingar:
Glæsilegt gæðingamót sem verður haldið á Sörlavöllum 24.-27. ágúst. Mótið verður allt hið veglegasta með glæsilegum verðlaunum. Einn og einn verður inn á í einu og mun sína sitt prógram. Hitað verður upp í grillinu á kvöldin og allt gert til þess að öllum líði sem best í Hafnarfirðinum.
Skráning fer fram á netinu fimmtudaginn 18. ágúst – sunnudagsins 21. ágúst á netfangið ; [email protected]>
Það sem þarf að koma fram þegar skráð er: Nafn og kennitala knapa. IS númer og nafn hests. Flokkur, keppnisgrein og upp á hvaða hönd skal riðið(í tölti). Símanúmer knapa.
Skráningargjald er 3.000 krónur og skal leggja inn á reikning 0135-26-2871, kennitala 640269-6509. Setja skal nafn knapa í skýringu og senda staðfestingu á [email protected]
Flokkar í boði: A flokkur opinn A flokkur áhugamenn B flokkur opinn B flokkur áhugamenn Ungmennaflokkur Unglingaflokkur Barnaflokkur Tölt meistara Tölt Opinn Tölt áhugamenn Tölt 21. árs og yngri 100 m. skeið 150 m. skeið 250 m. skeið
Taktu þessa daga frá og ekki láta þetta frábæra mót fram hjá þér fara, sjáumst á Sörlavöllum 24.-27.ágúst,” segir í tilkynningu frá mótanefnd Sörla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH