Lumar þú á nafni á hestamannafélagi?

  • 10. janúar 2013
  • Fréttir
Lumar þú á nafni á hestamannafélagi?

Nýstofnað hestamannafélag, Hestamannafélagið Kjóavöllum, boðar til samkeppni um nafn á félagið. Í fréttatilkynningu frá stjórn félagsins segir að öllum sé heimilt þátttaka í samkeppninni, bæði félagsmönnum og öðrum. 

„Ásamt tillögu að nafni og skýringum skal nafn og kennitala þátttakanda fylgja með í lokuðu umslagi. 

Tillögur þurfa að hafa borist til félagsins í seinasta lagi 15. janúar 2013, merkt: 

Hestamannafélagið Kjóavöllum 
Pósthólf 8413
128 Reykjavík 

Nafnanefnd félagsins mun fara yfir tillögurnar og leggja fram þau nöfn sem kosið verður um á komandi aðalfundi félagsins. 

Meirihluta atkvæða þarf við nafnavalið og verður kosið milli þeirra tveggja nafna sem flest atkvæði hljóta fáist ekki hrein úrslit við fyrstu kosningu. 

Hestar og Menn hestavöruverslunin, Lynghálsi 5, gefur glæsileg verðlaun. 

Vöruúttekt í Hestar og Menn fyrir 60 þúsund krónur eru í boði fyrir þann sem kemur fram með vinningsnafnið og verður dregið um vinningshafa, hafi tillaga að því nafni borist frá fleiri en einum þátttakanda. „

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link