MAST er áfram með málið til rannsóknar

  • 2. desember 2021
  • Fréttir
Blóðmerahald á Íslandi

Rannsókn Matvælastofnunar á meintum alvarlegum brotum á velferð blóðtökuhryssna heldur áfram. Dýravelferðarsamtökin AWF/STB vöktu nýlega athygli á aðbúnaði og aðferðum við blóðtöku á Íslandi. Samkvæmt lögum sér MAST sér um allar rannsóknir á dýravelferðarmálum. Þegar rannsókn hefur lokið getur stofnunin lokið málum annað hvort með stjórnvaldssektum eða vísað málunum til lögreglu.

Í tilkynningu MAST um málið þakkar stofnunin dýravelferðarsamtökunum AWF/STB fyrir veitta aðstoð við rannsóknina. Samtökin sendu frá sér opið bréf þann 1. desember sem MAST hefur sér til hliðsjónar við rannsóknina. Stofnunin segist taka allar ábendingar um alvarleg dýravelferðarbrot mjög alvarlega.

Einnig kemur fram í tilkynningunni að MAST telji að ekki megi grípa til neinna skyndiákvarðana að svo stöddu hvað varðar þetta mál. „Matvælastofnun styður að heildstæð umræða fari fram um framtíð greinarinnar en telur mikilvægt að í þeirri umræðu sé ekki gripið til skyndiákvarðana. Slík ákvörðun gæti stefnt velferð allt að 5000 hryssna í voða, m.a. væri þá hætt við að fjöldi hryssna kæmi til slátrunar seint á meðgöngu.“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link