Matthías Sigurðsson og Roði frá Garði Norðurlandameistarar í tölti ungmenna
Matthías Sigurðsson og Roði frá Garði eru Norðurlandameistarar í tölti ungmennaflokki með 7,06. Matthías var fjórði inn í úrslit en reið af miklu öryggi og landaði gullinu.
Innilega til hamingju Matthías!
Jakob Svavar Sigurðsson og Hálfmáni frá Steinsholti riðu A-úrslit í tölti T1 í morgun og enduðu í 6. Sæti með 7,72 í einkunn. Norðurlandameistari í tölti er Sys Pilegaard frá Danmörku á hestinum Abel frá Tyrevoldsdal með 8,83.


Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH