Meistaradeild Líflands & æskunnar Meistaradeild Líflands og æskunnar á EiðfaxaTV

  • 16. nóvember 2026
  • Fréttir
Þriðja tímabilið í röð sýnir EiðfaxiTV frá þessari skemmtilegu deild framtíðar knapa landsins

Meistaradeild Líflands og æskunnar verður áfram í beinni útsendingu á EiðfaxaTV en undirritaðir voru samningar þess efnis í síðustu viku. Deildin var stofnuð árið 2016 og var fyrst keppt í henni árið 2017. Hugmyndin með deildinni er að skapa keppendum á aldrinum 14-17 ára grunvöll til þess að þróst sem knapar.

Linda Björgvinsdóttir situr í stjórn deildarinnar. „Það að sýnt sé beint frá deildinni hefur mikla þýðingu. Þetta er mjög góð kynning og sýnileiki á því sem við erum að gera og svo er mikilvægt fyrir krakkanna í deildinni að geta horft á sýnar sýningar. Við hvetjum því alla til að horfa á beinar útsendingar frá deildinni í vetur á EiðfaxaTV.“

Alls verða það ellefu lið sem keppa í deildinni í vetur og koma þeir víða að m.a. frá Akureyri og Höfn í Hornafirði til viðbótar við höfðuborgarsvæðið, suður og vesturland. „Fyrirkomulagið verður með örlítið breyttu sniði í vetur en nú þurfa þrír knapar að keppa í hverri grein úr liði en áður voru það allir knaparnir úr hverju liði.“ Segir Linda spurð að því hvort einhverjar breytingar séu á fyrirkomulaginu í vetur.

Í deildinni ver keppt í sjö keppnisgreinum og það eru: Fjórgangur V1 – Fimmgangur F1, Gæðingalist- Tölti T1, slaktaumatölt T2 -gæðingaskeið PP1 og 100 m skeið.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link