Meistaramót æskunnar – Niðurstöður

  • 1. mars 2020
  • Fréttir

Jón Páll Tryggvason eigandi be húsbygginga og Fúsi framkvæmdarstjóri Léttis undirrita sammning um Meistaradeild Æskunnar. Mynd: Facebook/Léttir

Á facebook síðu Hestamannafélagsins Léttis er að finna þennan pistil um fyrsta mótið í Meistaradeild Æskunnar sem er ný stofnuð deild sem hugsuð er fyrir ungt fólk og fer keppni fram í Léttishöllinni á Akureyri. Myndirnar eru fengnar af facebook síðu Léttis.

 

Í dag laugardag fór fram fyrsti keppnisdagurinn í mótaröð æskunnar í barna- unglinga og ungmennaflokkum í Léttishöllinni á Akureyri.

Keppt var í fjórgangi og allir flokkar kepptu í Fjórgangi V1 en það er með einum keppandi inná í einu.

Keppnin var skemmtileg og ljóst að ungdómurinn á Akureyri og nágrenni er orðin hungraður í keppni og í dag sáust mörg góð tilþrif á vellinum sem gefur okkur góðar vonir um að þegar lengra líður fram á vorið verði hér hörkukeppni sem fram fer í meistaradeild æskunnar.

Í upphafi mótsins í dag var undirritaður samstarfssamningur Hestamannafélagsins Léttis og Be húsbygginga, en fyrirtækið kemur með miklum myndarskap að stuðningi við mótaröðina, svo miklum að ljóst er að þessi mikli stuðningur be húsbygginga er forsenda fyrir því að við getum haldið þessa skemmtilegu keppni æskunnar hjá okkur. Hafi Jón Páll Tryggvason eigandi be húsbygginga sem undirritaði samninginn fyrir sitt fyrirtæki í dag miklar og hjartans þakkir fyrir.

Einnig ber að geta þess að það var trésmíðafyrirtækið Valmenn sem gaf verðlaunin í keppninni í dag og er það ákaflega gleðilegt að sjá fyrirtæki hér í bæ sýna velvilja sinn með því að koma að æskulýðsstarfinu með okkur hestamönnum .

Eitt veldur þó heilabrotum þess er þessa frétt skrifar en það er sá mikli halli sem er á kynjajafnrétti á mótinu hjá okkur. Það voru alls 34 skráningar í þessum þremur flokkum og samtals 22 stúlkur sem skráðu sig í keppni en einungis 3 drengir. Nú hef ég svo sem ekki skoðað hvort þetta endurspegli hestamennsku og þátttöku í mótum annarstaðar á landinu en hvað veldur þessu? Er þetta ekki eitthvað sem við verðum að skoða og jafnvel samtök okkar LH ef þetta er raunin víð um land. Hestamennska hefur allt fram á þennan dag stært sig af miklu jafnrétti og blönduðum flokkum í allri keppni en vart er hægt að halda því óbreyttu ef þetta er þróunin. Þessa hugleiðingu set ég hér fram til umhugsunar.

Æskulýðsnefnd Léttis vill þakka öllum sem að komu í dag, keppendum sem sýndu mikla hátt og stundvísi og starfsmönnum og síðast en ekki síst áhorfendum fyrir komuna í Léttishöllina í dag.

Gott mót og skemmtilegt

Úrslit urðu sem hér segir.

Barnaflokkur.

1. Emla Lind Ragnarsdóttir/Mánadís frá Litla Dal 6.27.

2. Sandra Björk Hreinsdóttir/Bragi frá Björgum eink. 5.93 eh.

3. Heiða María Arnarsdóttir/ Hulda frá Leirubakka eink. 5.93 eh.

4. Hildur Helga Kolbeinsdóttir Bergen/Þruma frá Hraunkoti eink. 4.20.

5. Karen Mist Harðardóttir/ Blær frá Selá eink. 3.27.

6. Áróra Heiðbjört Hreinsdóttir/Sylgja frá S-Reykjum.

Unglingaflokkur

1. Auður Karen Auðbjörnsdóttir/Eldar frá Efra- Holti eink 6.57

2. Steindór Óli Tobíasson/Happadís frá Draflastöðum eink 6.37. eh.

3. Anna Kristín Auðbjörnsdóttir/Snörp frá Hólakoti eink 6.37. eh.

4. Eyþór Þorsteinn Þorvarson/Helli frá Y-Bægisá 1 eink 5.57.

5. Aldís Arna Óttarsdóttir/Þrándur frá Sauðárkróki eink 5.10.

Ungmennaflokkur

1. Annabella R Sigurðardóttir/Glettingur frá Holtsmúla 1 eink 7.07

2. Egill Már Þórsson/Fluga frá Hrafnagili eink 6.57.

3. Ingunn Birna Árnadóttir/Dáð frá Hólakoti eink 5.73.

4.Bjarney Anna Þórsdóttir/Dögun frá Finnastöðum eink 4.60.

5. Hulda Siggerður Þórisdóttir/Mánadögg frá Rifkelsstöðum 2 eink 3.97.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link