Miðvikudagur á Margaretehof Special
Margaretehof Special er fimm daga viðburður þar sem keppt er í hringvallagreinum, bæði gæðinga- og íþróttakeppni og á skeiðbrautinni en einnig er haldin kynbótasýning samhliða mótinu.
Vinir okkar á Eyja.net sendu okkur þetta myndband sem er samantekt frá gærdeginum á Margaretehof Special.
Hápunktur gærdagsins eftir gæðingakeppnina var tvímælalaust gæðingaskeiðið og frumraun þeirra Sigurðar Óla Kristinssonar og Fjalladísar frá Fornusöndum sem sést á myndbandinu. Fengu þau m.a. 10 fyrir niðurhæingu í seinni sprettinum og í bæði skiptin 10 í einkunn fyrir tíma.
Hægt er að sjá heildarniðurstöður, ráslista og dagskrá mótsins inn á IceTest.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH