Fóstur og hugarfóstur
Arney frá Ytra-Álandi og knapi hennar Agnar Þór Magnússon. Mynd: Kolla Gr. Photography.
Fyrir okkur sem lifum með kynbóta-bakteríunni er fátt skemmtilegra en að grúska í gagnagrunni Worldfengs, forvitnast um afkvæmi eftirminnilegra hryssa og máta sig við að para þær í huganum. Leikurinn veitir hinum „smituðu“ ákveðna útrás fyrir ræktunarþörf sína en er þar að auki sérlega hliðhollur buddunni. Um stund lifum við í hliðstæðum heimi, pörum okkar stórfenglegu gæðinga og eignumst svo bráðefnileg hugarfóstur í bunkum.
En ef við snúum aftur til raunheima, hvernig hafa hinir raunverulegu eigendur hagað ræktuninni? Við skyggnumst inn í ræktunarlíf þeirra hryssa sem stóðu efstar á Landsmótinu 2024 í Reykjavík í því trausti að þessir gæðingar séu okkur enn í fersku minni.
Hildur frá Fákshólum – efst 7 vetra og eldri hryssa

Hildur frá Fákshólum og knapi hennar Helga Una Björnsdóttir. Mynd: Úr safni Eiðfaxa.
Í flokknum 7 vetra og eldri stóð efst hryssan Hildur frá Fákshólum undan þeim Ölni frá Akranesi og Gnýpu frá Leirulæk sem bæði hafa hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Hildur hlaut aðaleinkunnin 8,85, hvorki meira né minna, og var sýnd af Helgu Unu Björnsdóttur. Hildur er í eigu Janina og Sabine Czudnochowski (95%) og Sabine Girke (5%). Hildur á nú þegar fimm afkvæmi; tvö undan Skarpi frá Kýrholti, þriðja undan Þráni frá Flagbjarnarholti, fjórða undan Hring frá Gunnarsstöðum og fimmta undan Safír frá Laugardælum. Hildur er fengin við Skýr frá Skálakoti og bætast þar enn fleiri heiðursverðlaunagen í pottinn.
Hetja frá Hofi – efst 6 vetra hryssa

Hetja frá Hofi og knapi hennar Helga Una Björnsdóttir. Mynd: Úr safni Eiðfaxa.
Næst á þessum lista er Hetja frá Hofi sem stóð efst í flokki 6 vetra hryssa, einnig sýnd af Helgu Unu Björnsdóttur, með aðaleinkunnina 8,52. Hetja er í eigu Arnars Heimis Lárussonar, Lárusar Finnbogasonar og Fákshóla ehf. Hún er undan Sleipnisbikarshafanum frá sama Landsmóti, Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum, og Giftingu frá Hofi sem einnig hefur hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Hetja á nú þegar eitt afkvæmi undan Feyki frá Stóra-Vatnsskarði en var haldið undir Safír frá Laugardælum í sumar. Líklega bleikur gæðingur væntanlegur með 135 stig í aðaleinkunn kynbótamats!
Arney frá Ytra-Álandi – efst 5 vetra hryssa

Arney frá Ytra-Álandi og knapi hennar Agnar Þór Magnússon. Mynd: Kolla Gr. Photography.
Arney frá Ytra-Álandi sigraði eftirminnilega flokk 5 vetra hryssa með aðaleinkunnina 8,78, sýnd af Agnari Þór Magnússyni. Arney er í eigu ræktenda sinna Úlfhildar Ídu Helgadóttur og Ragnars Skúlasonar. Hún er undan Sleipnisbikarshafanum Skýr frá Skálakoti og Erlu frá Skák. Arney á nú þegar afkvæmi undan Feyki frá Stóra-Vatnsskarði. Við vinnslu þessarar samantektar sló ég á þráðinn til Úlfhildar sem sagði þau hafa misst afkvæmi undan Arneyju og Safír frá Laugardælum í köstun í sumar. „Það er mikilvægt að fólk viti að þetta er stundum svona,“ segir Úlfhildur mér. Til allrar hamingju komst Arney heil frá köstuninni og gengur nú með afkvæmi undan Tinna frá Árdal. Sannkölluð huggun harmi gegn. „Það verður engin pressa á því afkvæmi þegar það verður fimm vetra,“ bætir Úlfhildur við og hlær. Væntanlegt afkvæmi verður jú undan hæst dæmdu fimm vetra hrossum frá upphafi!
Hamingja frá Árbæ – efst 4 vetra hryssa

Hamingja frá Árbæ og knapi hennar Árni Björn Pálsson. Mynd: Úr safni Eiðfaxa.
Hin leirljósa Hamingja frá Árbæ stóð efst í flokk 4 vetra hryssa með aðaleinkunnina 8,36, sýnd af Árna Birni Pálssyni. Hryssan er undan Gleði frá Árbæ og heiðursverðlaunahestinum Draupni frá Stuðlum. Hún er í eigu G. Jóhannssonar ehf. Í sumar fæddist hestur undan Hamingju og Hrók frá Skipaskaga, leirljós að lit, svo litaglaðir hryssueigendur geta hlakkað til framtíðarinnar. Í sumar var Hamingju haldið undir Dalvar frá Efsta-Seli.
Við látum staðar numið að sinni en hver veit nema við skyggnumst inn í hugarheim eigenda fleiri gæðingshryssa á næstunni. Þangað til hvet ég hestamenn til að rækta sem flest hugarfóstur og fullnægja þannig ræktunarþörfinni. Ef til vill er þetta viðskiptahugmynd í ætt við Football Manager sem ég eftirlæt þá hér með – hverjum sem vill – að þróa lengra.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing