Nám er tækifæri
Nú er fræðslustarf Fáks að vakna úr sumardvalanum og námskeiðahald haustsins farið að taka á sig mynd. Að venju verður fjölbreytt úrval námskeiða í boði, bæði gömlu, góðu námskeiðin í bland við ný og spennandi námskeið. Allar upplýsingar um reiðnámskeið sem verða í boði í haust er að finna á vefsíðu Fáks www.fakur.is Fyrir utan hin hefðbundnu reiðnámskeið verður einnig boðið uppá fyrirlestra ýmis konar og sýnikennslu.
Ein af nýjungum haustsins verður samstarf Fáks og Reiðmannsins við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Boðið verður uppá frumtamningarnámskeið á vegum Reiðmannsins sem verður kennt í Víðidalnum. Það verða reynsluboltarnir, reiðkennararnir og tamningarmennirnir, þeir Haukur Bjarnason á Skáney og Ólafur Andri Guðmundsson á Feti sem munu sjá um kennsluna í frumtamningarnáminu.
Kennslan mun fara fram fjórar helgar í október og nóvember. Auk verklegar kennslu verða úrvals fyrirlestrar um atferli, fóðrun, sjúkdóma í hestum og framhaldsþjálfun innifaldir í náminu. Hér er um að ræða einstakt tækifæri fyrir hinn almenna hestmann til þess að temja sitt eigið tryppi undir umsjón reyndra tamningamanna.
Það verður sem sagt nóg um að vera í fræðslustarfi Fáks í haust og vetur. Vonandi finna hestamenn fræðslu við sitt hæfi í Fáki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH