Landsamband hestamanna Níu manna rýnihópur um framtíð Landsmóta

  • 16. nóvember 2026
  • Fréttir
Hópurinn skipaður fólki sem hefur ólíka aðkomu að Landsmóti hestamanna

Bætt hefur verið við einum einstaklingi í rýnihópinn sem stofnaður var til að móta framtíðarsýn Landsmóts.

Stjórn Landssamband hestamannafélaga skipaði í október síðastliðnum sjö manna rýnihóp auk verkefnastjóra sem á að móta sameiginlega framtíðarsýn fyrir Landsmót hestamanna. Á nýafstöðnu landsþingi LH var samþykkt tillaga þess eðlis að stjórn LH myndi bæta við fleiri fulltrúum í starfshópinn til að tryggja að fjölbreyttari sjónarmið fengju rými í þeim störfum vinnuhópsins sem framundan eru. Það vakti athygli þingfulltrúa að af þessum sjö einstaklingum væru fjórir úr hestamannafélögum á höfuðborgarsvæðinu, einn frá Sleipni og einn úr Skagfirðingi.

Var brugðist við því og einum aðilum bætt við hópinn, Þórdísi Ingunni Björnsdóttur.

„Við val á fulltrúum í starfshóp um framtíðarsýn Landsmóta var ekki markmiðið að velja fulltrúa einstakra hestamannafélaga heldur var horft til þess að velja fulltrúa hestamennskunnar í heild. Hópurinn er skipaður fólki sem hefur ólíka aðkomu að Landsmóti, í honum eru keppendur, áhorfendur, fulltrúar mótshaldara, fulltrúi kynbótgeirans, aðstandandi keppenda og fulltrúi yngri kynslóðar,“ segir í svari frá stjórn Landssambands hestamannafélaga.

Eftirfarandi viðmið voru höfð til hliðsjónar:

Fulltrúi knapa af Suðurlandi sem bæði hefur tekið þátt í kynbótasýningum og keppnishluta mótsins (Árni Björn Pálsson)
Fulltrúi knapa af Norðurlandi sem bæði hefur tekið þátt í kynbótasýningum og keppnishluta mótsins (Bjarni Jónasson)
Framkvæmdastjóri Landsmóts í Reykjavík og á Hólum (Áskell Heiðar Ásgeirsson)
Framkvæmdastjóri Landsmóts á Hellu (Magnús Benediktsson)
Framkvæmdastjóri Landsmóts í Reykjavík (Einar Gíslason)
Fulltrúi sem hefur verið foreldri, aðstandandi og/eða áhorfandi (Petra Mogensen)
Fulltrúi knapa af yngri kynslóð (Eva Kærnested)
Fulltrúi frá kynbótageiranum (Þorvaldur Kristjánsson)
Fulltrúi frá deild hrossabænda innan Bændasamtaka Íslands (Þórdís Ingunn Björnsdóttir)

„Í kjölfar umræðu á Landsþingi var ákveðið að bæta við einum aðila í starfshópinn, deild hrossabænda óskaði eftir að fá að tilnefna þann aðila og það er Þórdís Ingunn Björnsdóttir en hennar snerting við Landsmót er sem áhugamaður og áhorfandi. Þar með er hópurinn nú skipaður níu fulltrúum úr ýmsum áttum í hestamennskunni.“

Kemur einnig fram að starfshópnum er ætlað fyrst og fremst svara spurningunum; hvað er Landsmót, hverju viljum við halda, hverju viljum við sleppa, hvað má alls ekki missa sín og hvað mætti gera meira af?

„Hópnum er ekki ætlað að komast að niðurstöðu um hvar skuli halda Landsmót, heldur hvaða aðstaða þarf að vera fyrir hendi til að hægt sé að halda Landsmót og hvernig á Landsmót að vera. Fyrsti fundurinn í starfshópnum hefur þegar verið haldinn og þar sköpuðust mjög góðar umræður þar sem farið var yfir heildarmyndina um Landsmót.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link