Nýdómaranámskeið í gæðingadómum
Nýdómara- og landsdómaranámskeið í Gæðingadómum verður haldið í Reykjavík 29. apríl – 1. maí, ef næg þáttaka fæst en að lágmarki þurfa 14 manns að skrá sig á námskeiðið. Einnig verður boðið upp á upprifjunarnámskeið þessa sömu daga.
Kennt verður í húsakynnum ÍSÍ og á svæðum hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu.
Skráning fer fram til miðvikudagsins 20. apríl en staðfesta verður þáttöku með staðfestingargjaldi, 25.000 kr. Verð námskeiðs og gagna er kr 58.000 fyrir nýdómaranámskeið og kr 38.000 fyrir Landsdómaranámskeið.
Gögn verða send til viðkomandi um leið og skráningarfrest lýkur. Í fréttatilkynningu frá Gæðingadómarafélaginu segir að nauðsynlegt sé að þáttakendur komi vel undirbúnir þegar námskeið hefst og er þar átt við lög og reglur LH/Gæðingakeppni og leiðara.
Flest Hestamannafélög styrkja sitt fólk til þátttöku og hvatt er til þess að áhugasamir kynni sér málið og hafi samband við félögin eða Gæðingadómarafélagið ef frekari upplýsinga er óskað.
Skráning á námskeiðið og fyrispurnir skal senda á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH