Nýtt ár – Ný tækifæri

  • 24. desember 2019
  • Fréttir
Jólakveðja Ritstjóra Eiðfaxa

Síðastliðið vor, nánar tiltekið í byrjun maí mánaðar, keyptu nýjir eigendur Eiðfaxa og í kjölfarið tóku nýjir stjórnendur við keflinu. Gylfi Þór Þorsteinsson var ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra og undirritaður í stöðu ritstjóra.
Ljóst var frá upphafi að verkefnið var ærið, áskrifendum hafði fækkað töluvert frá því sem mest var og tekjur voru af skornum skammti. Þó svo að ljóst væri frá byrjun að verkefnið væri krefjandi að þá var ákveðið að fara af stað af metnaði og reyna að gera þessum fornfræga félaga hestamanna eins hátt undir höfði og möguleiki væri á.
Með metnaðarfullu átaki hefur okkur nú tekist að fjölga áskrifendum svo um munar, en betur má ef duga skal og vonumst við til þess að fleiri áhugamenn um íslenska hestinn bætist í hóp áskrifenda á nýju starfsári. Það er á ábyrgð okkar sem að blaðinu standa að reyna að hafa blaðið fjölbreytt og skemmtilegt, því aðeins með þeim hætti er hægt að fjölga áskrifendum.
Fyrsti sigurinn var unnin fljótlega í ferlinu þegar við tókum til við að gefa Eiðfaxa aftur út á því formi sem hann er í núna, í formi tímarits. Þá var leitast við að reyna að hafa efnistökin fjölbreytt og ná þannig til þess breiða hóps sem stundar hestamennsku. Eitt af því sem var á markmiðaskránni var að koma upp nýrri og endurbættri heimasíðu, sem nú hefur tekist.
Framundan á nýju ári eru fleiri verkefni sem þarf að takast á við. Strax á nýju ári byrja keppnisdeildir víðsvegar um landið en reynt verður eftir fremsta megni að fylgjast með þeim öllum og mæta á keppniskvöld og taka púlsinn á keppendum og áhorfendum. Þá vonumst við til þess að tímaritið nái að dafna áfram og að efnistök falli vel í kramið hjá lesendum. Þá hefur það verið á stefnuskránni að koma aftur á fótinn alþjóðlegri útgáfu af Eiðfaxa og með því verða aftur leiðandi í fróðlegri og fréttatengdri umfjöllun um íslenska hestinn, utan landssteinanna.
Framundan er Landsmót hestamanna.  Í öllum hesthúsum er nú að finna vonarstjörnur næsta árs sumir stefna með hesta sína á Landsmót, aðrir stefna í hestaferð, og eru sjálfsagt byrjaðir að skipuleggja hvert skal halda og hvenær. Nú tekur sól að hækka á lofti og nýtt ár bíður með ný tækifæri. Ég vil fyrir hönd Eiðfaxa óska lesendum blaðsins gleðilegra jóla, á sama tíma og ég þakka árið sem senn er að líða.

Gísli Guðjónsson ritstjóri Eiðfaxa

Ljósmyndina sem fylgir pistlinum tók Marta Gunnarsdóttir

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link