Olivia leiðir A flokk ungmenna
Norðurlandamótið hófst nú í morgun og er í beinni útsendingu á EiðfaxaTV, í dag er keppt í forkeppni í gæðingakeppni. Eftir B flokkinn var farið í forkeppni í A flokki ungmenna, Ísland átti þar tvo fulltrúa en alls kepptu 14 pör í forkeppni.
Olivia Kasperczyk og Már frá Rauðalæk eru efst eftir forkeppni með 8,42 í einkunn en þau keppa fyrir hönd Danmerkur. Þar á eftir er samlandi hennar Mathilde Hudlebusch Vestergaard á Hroka frá Margrétarhofi með 8,36 í aðaleinkunn og í þriðja er Ester Östberg á Hátindi frá Álfhólum með 8,31 í einkunn en þau keppa fyrir Svíþjóð.
Kristín Eir Hauksdóttir Holaker tryggði sér einnig sæti í A úrslitum en hún er á Engli frá Ytra-Bægisá I og enduðu þau í sjöunda sæti með 8,23 í einkunn. Guðmar Hólm Ísólfsson náði ekki í sæti í úrslitum en hann sat Leik frá Lækjamóti II og klikkaði skeiðið hjá þeim félögum.
A úrslit í A flokki ungmenna fara svo fram seinni partinn á fimmtudaginn. Hægt er að nálgast allar niðurstöður, ráslista og annað á snjallforritinu HorseDay.
Niðurstöður úr forkeppni í A flokki ungmenna
| Sæti | Knapi | Hross | Land | Einkunn |
| 1 | Olivia Kasperczyk | Már frá Rauðalæk | Danmörk | 8,42 |
| 2 | Mathilde Hudlebusch Vestergaard | Hroki frá Margrétarhofi | Danmörk | 8,36 |
| 3 | Ester Östberg | Hátindur frá Álfhólum | Svíþjóð | 8,31 |
| 4 | Mathilde Løkke Torup | Kári frá Korpu | Danmörk | 8,30 |
| 5 | Alice Ekman | Karri frá Gauksmýri | Svíþjóð | 8,29 |
| 6 | Alfons Bergqvist | Bjartur frá Strandarhjáleigu | Svíþjóð | 8,23 |
| 7 | Kristín Eir Hauksdóttir Holaker | Engill frá Ytri-Bægisá I | Ísland | 8,23 |
| 8 | Julie Thorsbye Andersen | Ás frá Strandarhöfði | Noregur | 8,15 |
| 9 | Lisa Krogvig Bjørnstad | Hugur frá Þúfum | Noregur | 8,09 |
| 10 | Synne Hårdnes Mjølstad | Mínímý från Ekudden | Noregur | 8,00 |
| 11 | Alma Jonsson | Mói frá Efri-Fitjum | Svíþjóð | 7,98 |
| 12 | Elisa Lund Iskov | Rönd frá Selfossi | Noregur | 7,98 |
| 13 | Guðmar Hólm Líndal | Leikur frá Lækjamóti II | Ísland | 7,42 |
| 14 | Rebecca Hesselbjerg Taulborg | Drakúla frá Akurgerði | Danmörk | 7,42 |
Olivia leiðir A flokk ungmenna
Safír í hæstu hæðir
Skráning á Áhugamannamót Íslands til miðnættis!