Opið fjórgangsmót
Bikarmót Harðar verður haldið 28.febrúar næstkomandi. Mótið er öllum opið og keppt verður í fjórgangi.
.Bikarmót Harðar er liður í LH-móti.
Efstu knapar vinna sér rétt til að keppa fyrir hönd Harðar í lokakeppni sem haldin verður 3-4. Apríl.
Knapi er ekki skyldugur til að koma með sama hest í lokakeppnina.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- Unglingaflokkur – V2
- Ungmennaflokkur – V2
- Opinn flokkur:
- – V1
- – V2
Skráningargjald er 2000 kr. Skráning fer fram á Sportfeng og er hafin. Henni lýkur fimmtudaginn 27. febrúar kl:20
Tengill á Sportfeng: hér
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH