Örfáir miðar eftir á Stóðhestaveisluna

  • 9. apríl 2024
  • Fréttir
Nú fer hver að verða síðastur til að tryggja sér miða á Stóðhestaveisluna á laugardaginn

Stóðhestaveislan er á laugardaginn í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. Sýningin hefst kl. 20:00 og eru örfáir miðar eftir á veisluna.

Vegna fjölda fyrirspurna ákváðum við að taka stöðuna á miðafjölda í verslunum. Mesta líkur eru að ná miða með því að drífa sig í Ástund í Reykjavík. Örfáir miðar eru eftir í Baldvini og Þorvaldi á Selfossi, einhverjir miðar eru eftir í Líflandi á Selfossi og á Hvolsvelli en uppselt er í Líflandi í Reykjavík.

Hægt er að senda á maggiben@gmail.com og komast á biðlista.

Miðaverð er 5.500 krónur og hverjum miða fylgir Biblía hrossaræktendans, Stóðhestabókin! Gjöf en ekki gjald. Stóðhestabókin kemur síðan í verslanir eftir helgina.

Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli á laugardaginn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar