Landsmót 2024 Ræktunarbúin sem koma fram á Landsmóti

  • 25. júní 2024
  • Fréttir
Sýning ræktunarbúa á Landsmóti

Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á Landsmótum hestamanna og á LM2024 verður engin breyting þar á. Tilhögun sýninga verður með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði bundin við tíu ræktunarbú. Ræktunarbúin eru á dagskrá mótsins föstudagskvöldið 5. júlí og mun áhorfendum verða boðið að velja bestu ræktunarbússýninguna.

Það ræktunarbú sem sigrar á föstudagskvöldinu ávinnur sér þann heiður að koma fram á laugardagskvöldinu í skemmtidagskrá kvöldvöku. Sýningartími á hvert bú er 5 mínútur. Útfærsla sýningar er alfarið á ábyrgð forráðamanna. Fótaskoðun verður viðhöfð og gilda reglur gæðingakeppni þar um, auk allra viðmiðana mótsins um heilbrigði og dýravelferð. Að lágmarki skulu fimm hross sýnd og þurfa þau að vera frá sama lögbýli, eða fædd meðlimum sömu fjölskyldu.

Þátttakendur velja tónlist sjálfir og hafa samráð við þul hvernig búið skuli kynnt. Sýnendum býðst að nota risaskjá til kynningar á búinu á meðan sýningu stendur og einnig að senda inn efni á vef landsmóts. Ræktunarbúum ársins 2023 er boðin þátttaka sem og keppnishestabúi ársins 2023 en það eru Þúfur, Fákshólar og Strandarhjáleiga.

Mótsstjórn valdi af handahófi þessi ræktunarbú til þátttöku í sýningu ræktunarbúa:

  • Álfhólar
  • Eystri-Hóll
  • Flugumýri
  • Hrafnagil
  • Ragnheiðarstaðir
  • Íbishóll
  • Lækjarbrekka
  • Margrétarhof
  • Strandarhöfuð
  • Sumarliðabær
  • Þjóðólfshagi 1

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar