Klassi hæst dæmdur á Hedeland

  • 7. september 2026
  • Fréttir

Klassi fra Slippen. Ljósmynd: DI - avl og kåringer

Siðustu kynbótasýningu ársins 2026 lokið

Síðasta kynbótasýning ársins fór fram í Hedeland í Danmörku um síðustu helgi, dómarar voru þau Tom Buijtelaar og Svanhildur Hall.  Sextán hross komu fram á sýningunni og þar af voru þrettán þeirra sýnd í fullnaðardómi.

Hæst dæmda hross sýningarinnar var Klassi fra Slippen sýndur af Jóhanni Rúnari Skúlasyni sem er einnig ræktandi og eigandi hestsins. Klassi er 7.vetra gamall stóðhestur undan Garra frá Reykjavík og Köru fra Slippen. Hann er með 8,42 fyrir sköpulag þar á meðal 9,0 fyrir samræmi og 9,5 fyrir prúðleika. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,05, klárhestur með 9,0 fyrir tölt, hægt tölt, samstarfsvilja, fegurð í reið og greitt stökk. Aðaleinkunn hans er því 8,18.

 

Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi
DK2019100428 Klassi fra Slippen 8.42 8.05 8.18 Jóhann Rúnar Skúlason
DK2020100100 Harald fra Almindingen 8.26 7.98 8.08 Dennis Hedebo Johansen
IS2020156816 Rauðdreki frá Geitaskarði 8.25 7.88 8.01 Sigurður Óli Kristinsson
DK2021200382 Lína fra Slippen 8.15 7.89 7.98 Jóhann Rúnar Skúlason
DK2015200463 Tindra fra Kirstineholm 7.79 8.02 7.94 Rebecca Hesselbjerg Taulborg
DK2020100480 Sveipur fra Møgelmose 8.09 7.85 7.93 Þórður Þorgeirsson
DK2017200215 Tóra fra Almindingen 7.86 7.91 7.89 Rebecca Hesselbjerg Taulborg
DK2021200484 Litla-Drift fra Tyrevoldsdal 8.12 7.74 7.87 Henriette Hindbo
DK2017200468 Hafbrá fra Nysted 7.97 7.7 7.8 Sigurður Óli Kristinsson
DK2021200524 Vilma fra Tummelsbjerg 8.27 7.52 7.79 Sigurður Óli Kristinsson
DK2021200041 Víóla fra Vindhøj 8.31 7.49 7.78 Elisabeth Sys Pilegaard
DK2022200534 Karen fra Slippen 7.91 7.16 7.43 Jóhann Rúnar Skúlason
DK2020200251 Líf fra Sólvig 7.56 6.6 6.94 Henriette Hindbo
DK2021200391 Barónessa fra Himmelgaarden 8 Henriette Hindbo
DK2023200494 Dísa fra Hårkildegård 7.86 Pernille Wulff Harslund
DK2023100676 Flögri fra Horskilde 7.29 Sofie Hoffland

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link