Ræktunardagur Eiðfaxa
Eiðfaxi hefur áður staðið að slíkum samkomum síðast árið 2017 í blíðskaparveðri eins og sjá má á þessari mynd
Eins og hestamenn vita var Stóðhestaveislu Eiðfaxa, sem fara átti fram þann 4.apríl síðastliðin, aflýst sökum Covid-19 eins og fleiri viðburðum um heim allan. Undirbúningur fór þegar af stað við það að leita leiða til að halda svipaðan viðburð utandyra þegar sól myndi hækka á lofti og línur myndu skýrast hvað samkomubann varðar og í framhaldinu mótahald vorsins.
Undirbúningur fyrir ræktunardag Eiðfaxa hefur verið í gangi undanfarið og þegar hefur verið talað við aðila sem munu annast útsendingu og verður sýnt frá viðburðinum í beinni útsendingu og honum lýst bæði á íslensku, ensku og þýsku. Ræktunardagurinn fer fram þann 9.maí á félagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík og nú þegar hafa frábærir hestar boðað komu sína.
Þá er biblía hrossaræktandans Stóðhestabókin í fullri vinnslu og verður hún gefin út í byrjun maí, áskrifendur Eiðfaxa ættu því von bráðar að geta nálgast stóðhestabókina, og svo í framhaldinu fylgst með glæstum gæðingum í beinni útsendingu á vef Eiðfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH