Ragnar Snær sigurvegari Meistaradeildar æskunnar

  • 15. apríl 2024
  • Fréttir

Stigahæsti knapi deildarinnar 2024, Ragnar Snær Viðarsson, ásamt Ingibjörgu Ástu Halldórsdóttur sölu- og markaðsstjóra Líflands, sem frá upphafi hefur verið aðalstyrktaraðili deildarinnar. Myndir: Meistaradeild Líflands og æskunnar

Lokamót Meistaradeildar Líflands & æskunnar fór fram í Víðidalnum í gær.

Keppt var í tveimur greinum, gæðingaskeiði og slaktaumatölti. Fullt af stigum var í pottinum bæði í liða- og einstaklingskeppni vetrarins.

Gæðingaskeiðið fór fram á skeiðbrautinni fyrir neðan félagsheimili Fáks. Margar vel útfærðar sýningar sáust og að lokinni keppni stóð Lilja Rún Sigurjónsdóttir úr liði Kambs, á Heiðu frá Skák uppi sem sigurvegari með einkunnina 7,50. Annar varð Róbert Darri Edwardsson í liði Top Reiter, á Máneyju frá Kanastöðum með 7,25 og þriðja Sigurbjörg Helgadóttir á Hörpurós frá Helgatúni með 7,04.

Stigahæsta liðið í gæðingaskeiðinu varð lið Lækjarbrekku/Nettó með 70 stig. F.v.: Elín Ósk Óskarsdóttir, Viktor Óli Helgason, Róbert Darri Edwardsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir.

Dagur vann slaktaumatöltið

Slaktaumatöltið fór fram í Lýsishöllinni en 43 knapar voru á ráslista og sterk keppni. Hægt er að horfa á slaktaumatöltið HÉR.

Eftir forkeppnina var Lilja Rún Sigurjónsdóttir liði Kambs efst á Arion frá Miklholti með 7,10, annar Dagur Sigurðarson á Gusti frá Miðhúsum með 7,07 og jafnar í 3-4 sæti þær Fanndís Helgadóttir og Elísabet Vaka Guðmundsdóttir á Birki frá Fjalli með 6,97. Það var því mjótt á mununum og ný keppni framundan í úrslitunum.

B-úrslitin voru glæsileg, enda var þetta geysisterk keppni sem fór þannig að Ragnar Snær Viðarsson á Fjölni frá Hólshúsum vann með 7,21. Annar varð Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson á hestagullinu Polku frá Tvennu mð 7,04 og þriðja Elva Rún Jónsdóttir á höfðingjanum Roða frá Margrétarhofi með 7,00.

A-úrslitin fóru þannig að Dagur á Gusti lyftu sér upp í 1. sætið með 7,12 með öruggri sýningu á slaka taumnum. Önnur varð Elísabet Vaka á Birki með 6,88 og þriðja Fanndís á Ötuli með 6,58.

A-úrslitaknapar í slaktaumatölti: Elísabet Líf Sigvaldadóttir, Lilja Rún Sigurjónsdóttir, Fanndís Helgadóttir, Elísabet Vaka Guðmundsdóttir og Dagur Sigurðarson.

Ragnar Snær vann einstaklingskeppnina

Þá var komið að því að verðlauna stigahæsta knapa og liðið eftir veturinn. Stigahæsti knapi vetrarins varð Ragnar Snær Viðarsson í Fáki og liði Hrímnis/Hest.is, með 33,5 stig. Hann vann deildina annað árið í röð. Önnur stigahæst varð Svandís Aitken Sævarsdóttir í liði Hofsstaða/Ellerts Skúlasonar með 33 stig og þriðja Elva Rún Jónsdóttir í sama liði með 27 stig.

Stigasöfnun liða var einnig mjög spennandi og á endanum stóð lið Hrímnis/Hest.is uppi sem sigurvegari vetrarins, annað árið í röð með 389 stig, í öðru sæti varð lið Hofsstaða/Ellerts Skúlasonar með 378 stig og þriðja liðið varð lið Kambs með 355 stig.

Stigahæsta lið vetrarins varð lið Hrímnis/Hest.is. F.v.: Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson, Friðrik Snær Friðriksson, Ragnar Snær Viðarsson og Dagur Sigurðarson.

Elísabet hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi reiðmennsku

Dómarar deildarinnar gefa knöpum stig á hverju móti fyrir framúrskarandi reiðmennsku. Á lokamótinu eru svo stigin tekin saman og hlýtur einn knapi sérstök reiðmennskuverðlaun vetrarins. Að þessu sinni komu þau í hlut Elísabetar Lífar Sigvaldadóttur.

Sigurður Emil Ævarsson á heiðurinn af reiðmennskuverðlaunum deildarinnar. Hér er hann með handhafa verðlaunanna í ár, Elísabetu Líf Sigvaldadóttur sem er vel að þeim komin.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar