Rúmlega helmingur með áverka í munni

  • 7. nóvember 2012
  • Fréttir
Rúmlega helmingur með áverka í munni

Skýrsla um niðurstöður heilbrigðisskoðana á keppnis- og sýnigarhrossum á Landsmóti hestamanna og Íslandsmóti í hestaíþróttum árið 2012 hefur nú verið birt á vef Matvælastofnunar. En á Landsmóti Hestamanna 2012 fóru öll keppnishross og kynbótahross í heilbrigðisskoðun fyrir keppni samkvæmt fyrirkomulaginu „Klár í keppni“ (alls 562 hross). Á Íslandsmóti í hestaíþróttum voru 201 hross skoðuð og voru því samtals 753 hross skoðuð með þessum hætti á árinu. 

Í skýrslunni kemur fram að áverkar í munni voru lang algengastir á Landsmótinu. Fyrir forkeppni fundust áverkar í munni 45% hrossanna og jókst það hlutfall upp í 56% fyirr úrslit. Er þetta hlutfall töluvert hærra en verið hefur á undanförnum árum.  Tíðni alvarlegra áverka jókst þegar komið var í úrslit, eða úr 9% í 16%. Verst var útkoman í úrslitum í tölti en þar voru 70% keppnishrossa með áverka í munni þar af 30% með alvarlega áverka. Minnst var um áverka í skeiðgreinunum og er sú niðurstaða í samræmi við skoðanir frá fyrri árum.

Tíðni áverka í munni hjá kynbótahrossunum reyndist sambærileg og hjá keppnishrossunum. Athygli vekur þó að hún er áberandi lægri hjá fjögurra vetra hrossunum en þeim eldri. 

Á Íslandsmótinu var tíðni alvarleg áverka meiri en á Landsmótinu. Þar eins og á Landsmótinu var mest um áverka í tölti (T1) en enginn hestur var með áverka í slaktaumatölti (T2).

Áverkar í forkeppni reyndust oftast vægir og mest var um þá í munnvikum og í slímhúð innan á kinnum. Alvarlegri áverka var hlutfallslega oftar að finna yfir kjálkabeini á tannlaus bilinu og jókst tíðni þeirra jafnt og þétt eftir því sem leið á mótið. Þegar kom að úrslitum voru áverkar á kjálkabeini orðnir yfirgnæfandi. Þá voru 3 hestar með alvarlega áverka á kjálkabeini og einnig með áverka á tungu sem má rekja til viðleitni hestsins til að verja kjálkabeinin með tungunni.

Lítið var um meiðsli á fótum keppnishesta á þessum mótum og var nánast ekkert ágrip á olnboga en töluvert bar á þeim á Landsmóti 2010. 

Fjallað verður ítarlega um niðurstöðurnar í jólablaði Eiðfaxa

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link