Siggi, strikaðu mig strax út af listanum!
Eiðfaxi Vetur er í prentsmiðju þessa dagana og kennir þar ýmissa grasa í efnisvali. Á meðal efnis er viðtal við hestamanninn, hrossaræktandann og fyrrum landsliðseinvaldinn Sigurð Sæmundsson eða Sigga Sæm eins og hann er oftast kallaður. Siggi skautar yfir sitt æviskeið í viðtalinu og eins og við er að búast fá nokkrar skemmtisögur að fljóta með, m.a. frá tíma hans sem landsliðseinvaldur. Gefum Sigga orðið:
Einu sinni vorum við stödd með liðið í Þýskalandi og það gekk stúlka framhjá okkur Loga (Laxdal) og sagði: „Loooogi“ og var augljóslega mjög hrifin af kappanum, svo það leið nærri því yfir hana. Ég sagði við Loga að þetta væri með ólíkindum, það væri hreinlega röðin af kvenfólki mætt til að sjá hann. Já já, segir Logi og spyr hvort ég geti ekki haldið utan um bókhaldið á þessu og skráð þær á lista. Jú jú, ég geri það. Hópurinn fer svo saman út að borða og ég spyr hvort Olil Amble komist á þennan lista. Með miklum fortölum leyfði hún mér að bæta sér á hann. Nokkrum dögum seinna fórum við af mótsvæðinu til að fara á sjóskíði, því það var mjög gott að dreifa huganum þegar spennan var mikil. Við erum komin að vatninu og menn eru að gera sig klára á sjóskíðin. Logi fer þá úr að ofan og þá koma í ljós tveir björgunarhringir á okkar manni.
Olil kallar strax til mín: Siggi, Siggi strikaðu mig strax út af listanum!“
Eiðfaxi Vetur ætti að berast áskrifendum fyrir páska auk þess að vera til sölu í öllum helstu hestavöruverslunum landsins. Tryggðu þér þína áskrift að Eiðfaxa hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH