Skeiðleikar í Sörla
Keppt verður í 100 m Flugskeiði P2 á nýendurgerðri skeiðbraut félagsins sem vakti mikla lukku á nýafstöðnu íþróttamóti félagsins. Því hefur heyrt fleygt að hér sé um “bestu skeiðbraut landsins” að ræða – en líklega metur það hver og einn best sjálfur.
Nokkrir færustu skeiðknapar landsins mæta í braut og etja kappi. Búast
má við HÖRKU KEPPNI enda hafa þegar skráð sig til leiks
íslandsmeistarar, heimsmeistarar og aðrir snillingar.
Íslandsmetshafi í 100 m skeiði Guðmundur Björgvinsson mætir með Glúm frá
Þóroddsstöðum, og heimsmetshafi í 250 m skeiði, Konráð Valur Sveinsson
mætir með Kjark frá Árbæjarhjáleigu og Losta frá Ekru, Jóhann Magnússon
mætir með Fröken frá Bessastöðum sem á besta tímann á árinu og Sæmundur
Sæmundsson mætir með Seyð frá Gýgjarhóli – einn af alfljótustu
skeiðhestum landsins.
Þetta verður sannkölluð skeiðveisla.
Þeim sem vilja spreyta sig í þessari spennandi keppni bendum við á að
skráning er opin til hádegis á laugardag á sportfengur.com.
Þeir sem vilja njóta skeiðveislunnar úr brekkunni bjóðum við velkomna á
Sörlastaði þar sem að vanda verða veglegar veitingar í boði meðan á
dagskrá stendur.
Verið hjartanlega velkomin i fjörðinn fagra
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH