Skráning á Meistaramót Andvara hefst í kvöld
Meistaramót Andvara fer fram dagana 2. – 4. september nk., en skráning á mótið hefst á miðnætti í kvöld að er fram kemur á heimasíðu hestamannafélagsins.
„Nú styttist óðum í eitt skemmtilegasta mót ársins Meistaramót Andvaramanna á Kjóavöllum.
Þar verður haldið í hefðina og keppt í gæðingakeppni á beinni braut svo ekki sé minnst á hið margrómaða 100 metra skeið í flóðljósum á laugardagskvöldið þegar tekur að rökkva en þar hefur stemmingin oft orðin magnþrungin.
Sama fyrirkomulag og á síðasta ári OPINN FLOKKUR OG ÁHUGAMENN.
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
A-flokk á beinni braut OPINN FLOKKUR OG ÁHUGAMENN
B-flokk á beinni braut OPINN FLOKKUR OG ÁHUGAMENN
Tölt hringvöllur OPINN FLOKKUR OG ÁHUGAMENN
100m skeið undir 8 sek. sjálfkrafa með,aðrir í forkeppni föstudagskvöld.
150m skeið
250m skeið
Einnig verður forstjóratöltið á sínum stað.
Keppnisgjöld verða 3.700 fyrir hverja grein en 2.700 fyrir skeiðgreinarnar.
Skráning hefst Þriðjudaginn 23. ágúst stendur til miðnættis þriðjudagsins 30. ágúst Skráningin fer rafrænt fram á eftirfarandi slóð. http://gustarar.is/skraning.aspx?mode=add
Einnig er hægt að skrá beint í keppnina heimasíðu Gusts með flipann SKRÁNING sem er efst á síðunni þeirra.
Hægt er að skoða reglur meistaramótsins á heimasíðunni Andvara.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH