Smá frá Þúfu efst! video-
Smá frá Þúfu er nú hæst dæmda hryssa í 5 vetra flokki kynbótahrossa eftir fyrri umferð hæfileikadóma. Hún hlaut 8,5 fyrir hæfileika og í lokaeinkunn 8,32. Glæsilegt!
Í 2. sæti sem stendur er Tibra fra Vinkærsgard frá Danmörku sem Fredrik Rydström situr, með 8,29 í aðaleinkunn. Í 3. sæti er Ásdís fran Knutshyttan í Svíþjóð sem Vignir Jónasson sýnir, hún er nú með 8,06 í aðaleinkunn.
Yfirlitssýning hryssa fer fram á fimmtudag og þá hafa þær tækifæri á að heilla dómarana aftur og hækka einkunn sína.
Hér er líka video af Smá og Helgu Unu á æfingu hér St. Radegund.
Dómur Smá frá Þúfu:
Sköpulag:
Höfuð 8
Háls/herðar/bógar 8.5
Bak og lend 8.5
Samræmi 7.5
Fótagerð 7.5
Réttleiki 8
Hófar 8
Prúðleiki 9
Sköpulag 8.03
Hæfileikar:
Tölt 8.5
Brokk 8.5
Skeið 8.5
Stökk 8
Vilji og geðslag 9
Fegurð í reið 8.5
Fet 8
Hægt tölt 8
Hægt stökk 7.5
Hæfileikar: 8.5
Aðaleinkunn 8.32
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH