Snæfellingar heiðra félagsmenn
Hallur Pálsson hlaut Þotuskjöldinn með honum á myndinni er Herborg Sigurðardóttir formaður Snæfellings
Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu, hvatningaverðlaun til þeirra sem taka þátt á mótum fyrir hönd Snæfellings í barna, unglinga og ungmennaflokk, efstu kynbótahrossin. Hrísakot var valið ræktunabúið og Siguroddur Pétursson hestaíþróttamaður Snæfellings.
Þotuskjöldurinn sem er til minningar um Þotu frá Innra Leiti gefin af Leifi Kr. Jóhannessyni var afhentur Halli Pálssyni fyrir allt það óeigingjarna starf sem hann hefur unnið fyrir Snæfelling.
Það er öllum félögum nauðsyn að hafa svona virka félagsmenn eins og Hallur er. Happdrættið vakti mikla lukku og fóru sumir heim hlaðnir vinningum. Þökkum öllum þeim sem gáfu í happdrættið kærar þakkir fyrir stuðninginn.
Viðurkenningar til kynbótahrossa
Stóðhestar
4 vetra – Gljátoppur frá Miðhrauni,- ræktandi Ólafur Ólafsson – ae. 8,11
5 vetra – Ögri frá Bergi – ræktandi Jón Bjarni Þorvarðarson – ae. 8,27
6 vetra – Nökkvi frá Hrísakoti – ræktandi Sif Matthíasdóttir – ae. 8,48
7 vetra – Briminn frá Bergi – ræktandi Anna Dóra Markhúsdóttir – 7.86
Merar
5 vetra – Dröfn frá Stykkishólmi – ræktandi Valentínus Guðnason – 8,53
6 vetra – Bella frá Söðulsholti – ræktandi Söðulsholt ehf. – 8,10
7 vetra – Eyja frá Hrísdal – ræktandi Gunnar Sturluson og Guðrún M. Baldursdóttir – 8,18
Hvatningaverðlaun
Barnaflokkur
Sól Jónsdóttir
Valdís María Eggertsdóttir
Signý Ósk Sævarsdóttir
Gísli Sigurbjörnsson
Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir
Unglingaflokkur
Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir
Gróa Hinriksdóttir
Brynja Gná Bergmann Heiðarsdóttir
Tinna Guðrún Alexandersdóttir
Ungmennaflokkur
Borghildur Gunnarsdóttir
Fanney O Gunnarsdóttir
Inga Dís Víkingsdóttir
Inga Dóra Sigurbjörnsdóttir
Eftirtaldir gáfu vinninga í happdrættið
Hraðfrystihús hellissands, Kg fiskverkun, Sjávariðja, Pastel hárgreiðslustofa, Glóey snyrtistofa, Hafkaup, Sker, N1 Ólafsvík, Góa, Kaupfélag Borgfirðina, Húsasmiðjan Borgarnesi, Nettó Borgarnesi, FOK Borgarnesi, Lífland Borgarnesi, IceHest, Kristý Borgarnesi, Ásdís og Siguroddur Hrísdal, Lárus Hannesson, Ólafur Tryggvason, Sæferðir, Friðborg, Brimco, Söðulsholt, Búvörur SS, Margrét Erla Júlíusdóttir, Narfeyrarstofa, Sjávarpakkhúsið, Finnur Ingólfsson, Dísabyggð, Bjargarsteinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH