Sögulegt hlaup í 100 m skeiði
Hinn 15 vetra Frami frá St. Oswald hljóp 100 metra flugskeið á sögulegum tíma á Mið -Evrópska meistaramótinu, sem haldi var nú um helgina. Hann fór vegalengdina á 6,95 sekúndum, sem er langt undir gildandi heimsmeti Drífu frá Hafsteinsstöðum, sem er 7,18 sekúndur. Knapi á Frama var Carina Mayerhofer. Frami er ræktaður í Austurríki, undan Fagra-Sjóna frá Panoramahof og Skyssu frá Sauðanesi, Háfetadóttur frá Krossanesi. Aftar í ættum eru Þáttur frá Kirkjubæ, Freyr frá Akureyri og Náttfari frá Ytra-Dalsgerði. Frami hlaut 7,66 í kynbótadómi 2005, þar af 7,0 fyrir skeið. Hann á drjúgan feril í skeiðgreinum, 22,95 í 250 m skeiði, 14,13 í 150 m skeiði og 7,63 í 100 m skeiði. Hann hefur því bætt tíma sinn í 100 m skeiðinu svo um munar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH