Spennandi námskeið í Sörla
„Helgarnámskeið 14.-16. febrúar 2016 með Eyjólfi Ísólfssyni sem var í mörg ár yfirreiðkennari á Hólum. Hann er frábær kennari með mikla reynslu í kennslu og er einn af örfáum reiðkennurum landsins með réttindi A.
Hér er verulega spennandi tækifæri fyrir knapa að komast í tíma hjá þessum frábæra kennara. Eyjólfur er nú búsettur erlendis og eru því ekki mörg tækifæri að komast í tíma til hans. Kennsluhelgin verður 14.-16.febrúar n.k. Þetta eru einkatímar þar sem hver knapi fær aðstoð með eigin hest. Kennsla hefst seinnipart föstudags en verður framhaldið laugardag og sunnudag. Í lok námskeiðsins fær hver knapi leiðbeiningar um framhald þjálfunar fyrir sig og sinn hest.
Námskeiðið er opið öllum. Rétt er þó að vekja athygli á að einungis átta knapar komast í verklegu tímana. Hægt verður að kaupa sig inn á áhorfendapalla og fylgjast með kennslunni (einungis 15 manns)“
Sörlafélagar kr.59.900.-
Utanfélagsmenn kr. 64.900.-
Skráning á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands