Stefnt að 100 milljón króna aukafjárveitingu til reiðvegamála
 
									  
																			Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra og Guðni Halldórsson formaður LH með stóðhestinn Eld frá Torfunesi. mynd: LH
Undanfarið hafa hestamenn verið að kalla eftir auknu fé til reiðvegamála, bæði á opinberum vetvangi sem og í samtölum við ráðamenn. Það er því ánægjulegt að segja frá því að við undirritun sáttmála hestafólks og annarra vegfarenda og frumsýningu fræðslumyndbands um viðbragð hestsins í umferðinni síðastliðinn laugardag tilkynnti samgönguráðherra um fyrirhugaða aukafjárveitingu til reiðvegamála sem liggur fyrir Alþingi. Er þar um að ræða sértæka fjárveitingu að fjárhæð kr. 100.000.000,- sem kemur til afgreiðslu á þessu ári og næsta. Verða því framlög ríkissins til reiðvegamála kr. 125.000.000,- hvort ár.
Er þetta mikið ánægjuefni fyrir okkur hestamenn og mun reiðveganefnd LH funda á allra næstu dögum til að fara yfir hvernig þessari fjárveitingu verður sem best varið.
Þetta kemur fram á vef LH.
 
																							 
                 
             
                 
             Minningarorð um Ragnar Tómasson
                            	
                                                Minningarorð um Ragnar Tómasson                     
                 
             
                 
             
                 
             
                 
             
										 
                        
                 Landsmótið verður í beinni á EiðfaxaTV
                                        	
                                                                     
                                Landsmótið verður í beinni á EiðfaxaTV                             
                        
                 
                        
                 Sigvaldi Lárus Guðmundsson yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH næstu tvö árin
                                        	
                                                                     
                                Sigvaldi Lárus Guðmundsson yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH næstu tvö árin