Jaki hæst dæmdur á Toftinge
Jaki fra Dysterud. Ljósmynd: Facebooksíða Avelsbedömningar i Sverige
Um helgina fór fram kynbótasýning í Toftinge í Svíþjóð dómarar voru þau John Siiger Hansen og Elsa Mandal-Hreggviðsdóttir. Alls voru sýnd 25 hross á sýningunni og þar af 19 í fullnaðardómi en tvö þeirra hlutu yfir 8,00 í aðaleinkunn og fyrstu verðlaun. Kynbótasýningin verður aðgengileg innan skamms á EiðfaxaTV.
Hæst dæmda hross sýningarinnar var leirljós blesóttur stóðhestur, Jaki fra Dysterud í Noregi. Jaki er sjö vetra gamall undan Divari från Lindnäs og Jófríði frá Dallandi hann er ræktaður af Dysterud Breeding AS en eigandi er Rikke Skogstad, sýnandi á honum var Máni Hilmarsson. Hlaut Jaki 8,43 fyrir sköpulag og þar á meðal 9,0 fyrir samræmi, fyrir hæfileika hlaut hann 8,25 m.a. 9,0 fyrir hægt stökk og er aðaleinkunn 8,31.
Hæst dæmdi hestur í heimi
Landsliðsval allra þjóða klárt fyrir Norðurlandamót
Loftur Íslandsmeistari í tölti