Fullur eftirvæntingar fyrir komandi stórmóti
F.v. Sigurbjörn Eiríksson, Formaður landsliðsnefndar LH, og Ísólfur Líndal Þórisson.
Ísólfur Líndal Þórisson var ráðinn þjálfari A-landsliðs Íslands í hestaíþróttum í lok síðasta árs. Fyrsta mótið er nú framundan hjá honum því í næstu viku hefst Norðurlandamót sem fram fer á Margaretehof í Svíþjóð. „Það er frábær tilfinning og ég er spenntur fyrir hönd liðsmanna okkar og er sjálfur fullur eftirvæntingar að upplifa það að vera með lið á stórmóti. Stressið er ekkert því ég treysti öllum knöpunum vel fyrir sínu,“ segir Ísólfur, inntur eftir því hvernig líðanin sé þessa dagana.
Samsettur hópur af meisturum
Í fullorðinsflokki teflir Ísland fram mjög sterku liði, þá sérstaklega þegar horft er til Norðurlandamóts. Þar er eingöngu að finna sigursæla knapa og flestir af þeim hafa unnið til stórra titla bæði innanlands og utan. Með því að smella hér má glöggva sig frekar á landsliðshópnum. „Hópurinn er sterkur og ef ég tala bara um meistaraflokk þar sem ég kom að valinu, er það samsettur hópur af meisturum. Allt fullharnaðir einstaklingar ásamt einum nýliða í meistaraflokk sem kemur með ótal titla með sér. Einnig tel ég það vera styrkleika að allir knaparnir eru með hesta sem þeir gjörþekkja. Þannig að þetta ræðst á dagsforminu hjá hverjum og einum.“
Þrátt fyrir að í íslenska liðinu séu frábær keppnispör er það engin ávísun á árangur, enda er að finna feiknasterk pör í öllum greinum hjá hinum landsliðunum sem mæta til leiks. Íslandi hefur til að mynda ekki tekist að vinna liðabikarinn um nokkurt skeið og á síðustu tveimur Norðurlandamótum hafa Svíar unnið þann eftirsótta liðstitil. „Það væri auðvitað snilld að sigra liðabikarinn en ég hef hæfilega trú á því þar sem við sendum ekki fullt lið til leiks. Þrátt fyrir að það sé að fara stærri hópur núna í fullorðinsflokki heldur en undanfarið.“

Bergþór Eggertsson snýr aftur í landsliðið og nú á Fjalladís frá Fornusöndum. Á myndinni er hann á miklum spretti á Besta frá Upphafi á HM2019. Ljósmynd: Sofie Lathinen Carlsson
En stillti Ísólfur upp sínu liði með hliðsjón af liðsskipan hinna þjóðanna? „Nei, ég hafði það í rauninni ekki til hliðsjónar. Það var á stefnuskránni að senda sjö knapa í fullorðinsflokki ef það næðist að manna það með nægilega sterkum keppnispörum, sem ég tel að hafi tekist.“
Mótið hefst þann 4. ágúst og er því stutt í að fyrsti keppnisdagur gangi í garð. Hver eru verkefni Ísólfs nú næstu daga? „Verkefnin núna eru aðallega að pakka niður og vera í samtölum við þjálfarateymið og knapana. Þegar út er komið sé ég það fyrir mér að halda utan um hópinn. Vera til staðar, passa upp á fólkið mitt. Aðstoða á æfingum eftir þörfum og gera mitt til að knöpum og hestum líði vel.“
Mikill meðbyr heima fyrir
Norðurlandamótið er ávallt skemmtilegt áhorfs og mikilvægt fyrir þær þjóðir sem þar taka þátt.
„Það er mikil stemning fyrir NM bæði hér heima og erlendis. Margar af hinum þjóðunum senda feiknastór lið til leiks og er það af hinu góða. Ég er mjög ánægður með kraftinn og áhugann hér heima. Það er mikil sókn í LH og virkilega gaman að finna meðbyrinn sem er með íslenska landsliðinu. Styrktaraðilar að gera samninga til margra ára og okkar aðal fjáröflun, sýningin Allra sterkustu, gekk frábærlega svo eitthvað sé nefnt, sem gerir okkur kleift að koma til móts við knapana okkar varðandi kostnað sem hlýst af svona mótum. Norðurlandamót er stórmót sem við þurfum að sinna og mæta á af fullum krafti. Það hefur með sér dómínóáhrif inn í hestamennskuna á Íslandi á svo mörgum sviðum,“ segir Ísólfur að lokum.
Norðurlandamótið í heild sinni er sýnt á EiðfaxaTV og hlökkum við til þess að fylgjast með landsliðsknöpum Íslands takast á við kollega sína frá öðrum Norðurlöndum.
Fullur eftirvæntingar fyrir komandi stórmóti
Hæst dæmdi hestur í heimi
Jaki hæst dæmdur á Toftinge
Loftur Íslandsmeistari í tölti