Glæsilegur hópur Íslendinga á leið á Norðurlandamót í Svíþjóð
Á vefsíðu LH birtist frétt nú rétt í þessu um það hvernig landsliðshópur Íslands fyrir Norðurlandamótið í Svíþjóð er skipaður. Mótið fer fram á Margretarhofi í Svíþjóð 4.-9. ágúst og er í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Óhætt er að segja að landsliðshópur Ísland sé óvenjulega sterkur og greinilegt að landsliðsþjálfarar Íslands, þeir Ísólfur Líndal Þórisson og Sigvaldi Lárus Guðmundsson, ætla að byrja þjálfara ferilinn með landsliðinu á sterkum nótum.
Á vef LH segir m.a.: Hópurinn samanstendur af knöpum úr A- og U21-landsliðshópum Íslands ásamt knöpum úr hæfileikamótun LH sem taka þátt í unglingaflokki. Auk þeirra eru í hópnum knapar sem náð hafa framúrskarandi árangri á árinu erlendis. Heildarfjöldi keppenda eru 21 knapi með 23 hesta. Það er sannarlega ánægjulegt að sjá hve margir sterkir hestar voru í boði frá Íslandi fyrir mótið í ár, en í heildina verða 8 hross flutt út sérstaklega fyrir mótið. Hinir knaparnir munu tefla fram sterkum hestum sem þegar eru staðsettir erlendis.
Landsliðsteymið sem fylgir hópnum út til Svíþjóðar skipa:
- Ísólfur Líndal Þórisson, A-landsliðsþjálfari
- Sigvaldi Lárus Guðmundsson, U21-landsliðsþjálfari
- Hinrik Þór Sigurðsson, afreksstjóri LH
- Sigurbjörn Eiríksson, formaður afreks- og landsliðsnefndar LH
Hér að neðan má sjá hvaða knapar og hestar munu keppa fyrir Íslands hönd:
Knapar í fullorðinsflokki
- Þórarinn Eymundsson (Skagfirðingi) og Náttfari frá Varmalæk: Hafa náð góðum árangri í B-flokki og T1. Keppa í B-flokki gæðinga, T1 og V1.
- Þórður Þorgeirsson (Þýskalandi) og Gormur fra Villanora: Gormur er ríkjandi Norðurlandameistari í A-flokki. Keppa í A-flokki gæðinga.
- Reynir Örn Pálmason (Herði) og Agnar frá Margrétarhofi: Reynir er fyrrverandi heimsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum og Agnar hefur verið ofarlega í B-flokki. Keppa í B-flokki gæðinga, T1 og V1.
- Kristján Árni Birgisson (Geysi) og Krafla frá Syðri-Rauðalæk: Ríkjandi heimsmeistarar í 250m og 100m skeiði ungmenna. Keppa í 250m og 100m skeiði. Kristján mætir einnig með Hlekk frá Ytra-Vallholti til leiks. Keppa í A-flokki gæðinga.
- Bergþór Eggertsson (Þýskalandi) og Fjalladís frá Fornusöndum: Beggi er margfaldur heimsmeistari í skeiðgreinum og Fjalladís er fyrrum heimsmeistari í 250m og gæðingaskeiði. Keppa í PP1 og 250m skeiði.
- Snorri Dal (Sörla) og Gimsteinn frá Víðinesi: Reynt par sem var m.a. í A-úrslitum í fimmgangi á Íslandsmótinu í Hafnarfirði í sumar. Keppa í F1.
- Sigurður Narfi Birgisson (Þýskalandi) og Randver frá Þóroddsstöðum: Ríkjandi þýskir meistarar í 250m skeiði. Keppa í 250m og 100m skeiði.
Knapar í ungmennaflokki
- Fanndís Helgadóttir (Sörla) og Ötull frá Narfastöðum: Fyrrum Íslandsmeistarar í slaktaumatölti og gríðarsterkt par til margra ára. Keppa í T2 og T1.
- Sara Dís Snorradóttir (Sörla) og Nökkvi frá Syðra-Skörðugili: Nökkvi er gamalreyndur höfðingi og Landsmótssigurvegari í B-flokki. Þau Sara hafa verið geysisterk saman. Keppa í B-flokki ungmenna og T1.
- Hekla Rán Hannesdóttir (Spretti) og Tindur frá Árdal: Voru m.a. í B-úrslitum í B-flokki ungmenna á nýliðnu Landsmóti. Keppa í B-flokki ungmenna, T1 og V1.
- Jón Ársæll Bergmann (Geysi) og Viskusteinn frá Íbishóli: Jón er ríkjandi þrefaldur heimsmeistari ungmenna og Viskusteinn hefur verið frábær í T2 og gæðingakeppni. Keppa í B-flokki ungmenna, T1 og T2.
- Eva Kærnested (Fáki) og Logi frá Lerkiholti: Reynt par með úrslitasæti á Íslandsmótum að baki. Keppa í V1 og T1.
- Dagur Sigurðsson (Geysi) og Galbjartur frá Hóli: Dagur er eldfljótur skeiðknapi og ríkjandi Íslandsmeistari í 100m skeiði ungmenna. Keppa í 250m og 100m skeiði.
- Elva Rún Jónsdóttir (Spretti) og Kvasir frá Steinnesi: Elva Rún er ríkjandi Íslandsmeistari í T1 unglinga. Keppa í T1 og V1.
- Guðný Dís Jónsdóttir (Spretti) og Laki fran Adalgården: Ríkjandi Íslandsmeistari í gæðingaskeiði ungmenna. Keppa í T1 og V1.
- Kristín Eir Hauksdóttir Holaker (Borgfirðingi) og Engill frá Ytri-Bægisá: Kristín er fyrrum Landsmótsmeistari og Engill reyndur fimmgangshestur. Keppa í F1, T2, PP1 og A-flokki ungmenna.
- Elísabet Líf Sigvaldadóttir (Geysi) og Dyggur från Stummelbo: Ríkjandi Íslandsmeistari í T2 unglinga. Keppa í T1.
- Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal (Þyt): Guðmar er sjóðheitur þetta árið; þrefaldur Íslandsmeistari og tvöfaldur Landsmótsmeistari. Hann mætir með tvo hesta. Keppir á Leik frá Lækjamóti í A-flokki ungmenna og Arthúri frá Baldurshaga í B-flokki ungmenna, V1, T1 og T2.
- Þórgunnur Þórarinsdóttir (Skagfirðingi) og Tófa Þorvarsdottir från Stall Vitavillan: Eitursterkt fimmgangspar og silfurhafar frá HM 2025. Keppa í F1, T1, PP1 og 250m skeiði
Knapar í unglingaflokki
- Viktor Arnbro Þórhallson (Þjálfa) og Ársól från Stensäter: Viktor hefur farið mikinn á fimmgangsvængnum í unglingaflokki og Ársól er mjög sterk hryssa. Keppa í F1, T1, PP1 og 100m skeiði.
- Elísabet Benediktsdóttir (Sörla) og Mio från Änghaga: Öflugur knapi með frábæran árangur í flestum greinum. Keppa í T2, V1 og T1 unglinga.
- Elísabet Líf Sigvaldadóttir (Geysi) og Dyggur från Stummelbo: Hér tekur Elísabet einnig þátt á þessum sterka hesti sínum í gæðingakeppni. Keppa í unglingaflokki gæðinga.
Næstu dagar hjá landsliðinu og teyminu fara í undirbúning fyrir útflutning og ferðalag hrossanna, ásamt því að þeir knapar sem fá hesta lánaða erlendis munu stilla saman strengi.
Það verður gríðarlega spennandi að fylgjast með íslenska hópnum á Norðurlandamótinu. Sannkölluð veisla er framundan og rétt er að minna á að mótið verður sýnt í beinni útsendingu hér á Eiðfaxa TV, auk þess sem mótinu verður gerð góð skil á samfélagsmiðlum Landssambandsins.
Við á Eiðfaxa óskum öllum landsliðsknöpum og teyminu góðs gengis!
Glæsilegur hópur Íslendinga á leið á Norðurlandamót í Svíþjóð
Hæst dæmdi hestur í heimi
Dagný hæst dæmd í Herning
Norðmenn senda vaska sveit á Norðurlandamót
Kynbótadómar á Rangárbökkum hefjast á morgun