Landsmót Safír í hæstu hæðir

  • 7. júlí 2026
  • Fréttir

Safír frá Laugardælum, sýnandi Jakob Svavar Sigurðsson Mynd: Kolla Gr.

Heimsmetið yfir hæst dæmdi hestur í heimi stóð ekki lengi.

Safír frá Laugardælum var rétt í þessu að fara í 9.13 í aðaleinkunn sem er hæsti dómur sem íslenskur hestur hefur hlotið frá upphafi dóma.

Gæsahúðasýning hjá þeim Safír og Jakobi Svavar Sigurðssyni sem sýndi hestinn. Hlaut hann fyrir hæfileika 9,28. Þar af 9,5 fyrir tölt, skeið, samstarfsvilja og fegurð í reið og 9,0 fyrir brokk, greitt stökk, hægt stökk og hægt tölt.

Safír er undan Þráni frá Flagbjarnarholti og Skart frá Laugardælum. Ræktandi er Malin Widarsson en eigendur eru Fákshólar ehf. og Anja Egger-Meier.

Dómur Safírs

IS2019187322 Safír frá Laugardælum
Örmerki: 352098100080014
Litur: 62400 Fífilbleikur tvístjörnóttur
Ræktandi: Malin Widarsson
Eigandi: Anja Egger-Meier, Fákshólar ehf.
F.: IS2012181608 Þráinn frá Flagbjarnarholti
Ff.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi
Fm.: IS1997287737 Þyrla frá Ragnheiðarstöðum
M.: IS2012287320 Skart frá Laugardælum
Mf.: IS2003181962 Ómur frá Kvistum
Mm.: IS2005287321 Stroka frá Laugardælum
Mál (cm): 146 – 131 – 137 – 64 – 141 – 39 – 48 – 43 – 6,8 – 29,0 – 18,5
Hófa mál: V.fr.: 9,5 – V.a.: 8,6
Sköpulag: 9,0 – 8,5 – 9,0 – 9,5 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,0 = 8,83
Hæfileikar: 9,5 – 9,0 – 9,5 – 9,0 – 9,0 – 9,5 – 9,5 – 8,5 = 9,28
Hægt tölt: 9,0

Aðaleinkunn: 9,13
Hæfileikar án skeiðs: 9,25
Aðaleinkunn án skeiðs: 9,10
Sýnandi: Jakob Svavar Sigurðsson
Þjálfari:

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link