Styttist í Ís-landsmót

  • 23. febrúar 2012
  • Fréttir
Styttist í Ís-landsmót

Undirbúningur Ís-landsmótsins á Svínavatni er í fullum gangi. Mótið fer fram laugardaginn 3. mars og standa nú skráningar yfir að er fram kemur í tilkynningu frá undirbúningsnefnd mótsins:

“Skráningar berist á netfangið [email protected] í síðasta lagi þriðjudaginn 28. febrúar. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru: A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru 3.000. kr. á skráningu. Greiðist inn á reikning 0307 – 13 – 110496, kt. 480269-7139 í síðasta lagi þriðjudaginn 28. febrúar. Sendið kvittun á [email protected] þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa og hest er verið að borga.

Ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heimasíðu mótsins þegar nær dregur.”

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link