Styttist í Vesturlandssýningu
Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands undirbúa nú Vesturlandssýningar í Faxaborg, Borgarnesi.
„Dagskráin er þétt og mikil og góð þátttaka á meðal hestamanna á Vesturlandi.
Endanleg dagskrá verður auglýst á allra næstu dögum en hún spannar á milli 20-25 atriði.
Þar má helst nefna börn, unglinga, A-flokk gæðinga, B-flokk gæðinga, skeið, kynbótahross, ræktunarbú og afkvæmasýningar.
Einnig verða á sýningunni eftirtalin atriði: Menntaskóli Borgarfjarðar, Dívurnar úr Húnaþingi, dekkjarallý, Félag tamningamanna, fimleikar, vestlenskar heimasætur, svo eitthvað sé nefnt,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar sem haldinn verður laugardaginn 24. mars kl. 20.
Aðgangseyrir verður 1.500 kr. fyrir 15 ára og eldri.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing