Sýning ræktunarbúa á Heimsmeistaramótinu
Á heimsmeistarmótinu verður boðið upp á kynningarsvæði fyrir ræktendur – hið svokallaða Ræktenda-kaffihús (Breeders cafe). Það verður í höll Q, rúmgóðri höll í miðju svæðisins.
Ræktunarbú – kynningarbásar á Ræktenda kaffihúsinu
Ræktendum stendur til boða að kynna bú sín og sína ræktun á Ræktenda- kaffihúsinu á heimsmeistarmótinu gegn vægu gjaldi (ekki eiginlegir sölubásar).
Ræktendur geta kynnt bú sín og sína starfsemi á kynningarbásum í höllinni.
Kostnaðurinn er 300€. Mögulegt er að panta húsgögn til að hafa í básnum og skapa með því aðlaðandi umhverfi. Þetta er gert ræktendum til hægðarauka svo þeir þurfi eingöngu að koma með upplýsingar og kynningarefni.
Ef þú hefur áhuga á kynningarbás, hafðu vinsamlega samband við framkvæmdaraðila á: [email protected]
Sýning ræktunarbúa
Sýning ræktunarbúa verður mikilvægur hluti af kvölddagskrá heimsmeistarmótsins. Besta búið verður valið af áhorfendum.
Sýning ræktunarbúa fer fram 7. ágúst klukkan 19:00 (tilkynnt með fyrirvara).
Átta bú frá FEIF löndunum hafa 6 mínútur til að sýna hross frá búinu og sigurvegari kvöldsins verður valinn af áhorfendum (símakosning).
Reglur:
- Að hámarki 8 hross frá hverju búi og að lágmarki 4 hross.
- Valið verður eftir árangri hrossanna í kynbótadóm eða keppni.
- Bú fra nokkrum löndum verða valin.
- Öll hrossin í hverri sýningu verða að vera ræktuð á búinu, ekki skiptir málinu hvort hrossin eru ræktuð í sama landinu en skilyrði er að sami ræktandinn standi að baki hverju hrossi.
- Sömu reglur gilda um fótabúnað og gilda í keppni eða kynbótadómi.
- Hrossin verða að standast dýralæknaskoðun og reglur sem gilda um bólusetningar á heimsmeistaramótinu: (http://www.feif.org/service/documents/rulesandguidelines.aspx)
Ekkert gjald er tekið fyrir sýninguna en uppihald hrossanna verður rukkað af framkvæmdaraðilum mótsins (80 € + 15 € fyrir hvern auka dag en innifalið í gjaldinu er hey, undirburður og stía).
Skráning verður að berast á skrifstofu FEIF ([email protected]) fyrir 26. Júní 2015 og umsækjendur verða látnir vita fyrir 1. Júlí en valið verður framkvæmt af ræktunarnefnd FEIF.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bændasamtökunum og RML.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum