“Það er ekki gott að byrja vel og enda illa”

  • 7. apríl 2022
  • Fréttir

Sigurður Sigurðarson og Rauða-List frá Þjóðólfshaga

Viðtal við Sigurð Sigurðarson

Framundan er lokakvöld Meistaradeildarinnar og Stóðhestaveislan en Eiðfaxi hitti Sigurð Sigurðarson á Ingólfshvoli þar sem hann var að leggja á Rauðskegg frá Kjarnholtum en þeir félagar voru að taka létta æfingu fyrir stóðhestaveisluna sem verður á laugardaginn.

Sigurður stofnaði nýtt lið fyrir deildina í vetur, lið Þjóðólfshaga / Sumarliðabæ, sem er nú í fimmta sæti í liðakeppninni. Nóg er af stigum eftir í pottinum en keppt verður í tveimur greinum á föstudaginn, tölti og flugskeiði. “Við vorum að klára að stilla þetta af í gær en ég held að þetta verði svona; í töltið mætum ég, Mette Mannseth og Þórarinn Eymundsson. Ég kem með Rauðu-List frá Þjóðólfshaga, Mette með Skálmöld frá Þúfum og svo held ég að Þórarinn komi með eina jarpa hryssu frá Prestsbæ, Þrá, mikill gæðingur. Við þrjú mætum einnig í skeiðið,” segir Sigurður en hann byrjaði deildina með krafti í vetur á sigri í fjórgangnum á Spunasyninum, Leik frá Vesturkoti. Sigurður er nú í níunda sæti í einstaklingskeppninni með 13 stig og ætlar sé góða hluti á lokakvöldinu. “Það er ekki gott að byrja vel og enda illa svo ég ætla nú að reyna enda þetta vel líka,” bætir hann við og hlær.

Sigurður er fullur tilhlökkunar fyrir vorinu og sumrinu enda alltaf tilhlökkunarefni þegar Landsmót er framundan. “Nú erum við bara að fara setja stefnuna á kynbótasýningar og gæðingakeppnina. Svona sitt lítið af hverju. Í gæðingakeppnina stefni ég með Rauðu-List og Narfa frá Áskoti í b flokk og í a flokk er ég að stefna með þá Rauðskegg og Kolskegg frá Kjarnholtum. Svo týnist örugglega eitthvað meira til,” segir Sigurður að lokum og sest í hnakkinn.

Lokakvöld Meistaradeildarinnar fer fram á föstudaginn á Ingólfshvoli. Dregið verður í rásröð í dag á Alendis.is kl. 13:00.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link