Þorgeir og Aþena í gírnum!

Þriðja keppniskvöldið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fór fram í kvöld í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. Keppt var að þessu sinni í fimmgangi og spennan var mikil fyrir kvöldinu því á ráslistanum var að finna aragrúa af frábærum knöpum og hrossum. Fleiri þúsund manns fylgdust með í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og áhorfendastúkan í höllinni var einni þéttsetinn enda frítt inn í boði Toyota!
Það fór svo að Þorgeir Ólafsson og Aþena frá Þjóðólfshaga 1 voru ótvíræðir sigurvegarar kvöldsins því þau leiddu að lokinni forkeppni með 7,47 í einkunn og héldu forystu sinni í úrslitum og unnu með einkunnina 7,88 í úrslitum.
Lið sumarliðabæjar sigraði í liðakeppninni en allar þrír knapar liðsins voru í A-úrslitum þeir Þorgeir Ólafsson, Jón Ársæll Bergmann og Benjamín Sandur Ingólfsson.
Næsta keppnisgrein í Meistaradeildinni er gæðingalist sem fer fram þann 14.mars næstkomandi.
Hér að neðan má sjá úrslit kvöldsins.
Fimmgangur F1 | |||
Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur | |||
Forkeppni | |||
Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
1 | Þorgeir Ólafsson | Aþena frá Þjóðólfshaga 1 | 7,47 |
2 | Ásmundur Ernir Snorrason | Askur frá Holtsmúla 1 | 7,40 |
3 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Leynir frá Garðshorni á Þelamörk | 7,37 |
4 | Benjamín Sandur Ingólfsson | Pandóra frá Þjóðólfshaga 1 | 7,30 |
5 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | Kamma frá Margrétarhofi | 7,27 |
6 | Jón Ársæll Bergmann | Harpa frá Höskuldsstöðum | 7,20 |
7 | Hans Þór Hilmarsson | Ölur frá Reykjavöllum | 7,17 |
8 | Teitur Árnason | Goði frá Oddgeirshólum 4 | 7,07 |
9 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Snillingur frá Íbishóli | 7,03 |
10-11 | Jakob Svavar Sigurðsson | Gleði frá Hólaborg | 7,00 |
10-11 | Sigurður Vignir Matthíasson | Hlekkur frá Saurbæ | 7,00 |
12 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Eik frá Efri-Rauðalæk | 6,90 |
13 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Gýmir frá Skúfslæk | 6,77 |
14 | Helga Una Björnsdóttir | Hetja frá Hofi I | 6,70 |
15 | Árni Björn Pálsson | Ísbjörg frá Blesastöðum 1A | 6,67 |
16 | Viðar Ingólfsson | Vigri frá Bæ | 6,63 |
17 | Flosi Ólafsson | Védís frá Haukagili Hvítársíðu | 6,53 |
18 | Eygló Arna Guðnadóttir | Sóli frá Þúfu í Landeyjum | 6,43 |
19 | Hanna Rún Ingibergsdóttir | Kraftur frá Eystra-Fróðholti | 6,37 |
20 | Sara Sigurbjörnsdóttir | Eimur frá Torfunesi | 6,27 |
21 | Bylgja Gauksdóttir | Móeiður frá Feti | 6,10 |
22 | Jóhann Kristinn Ragnarsson | Spyrnir frá Bárubæ | 4,93 |
A úrslit | |||
Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
1 | Þorgeir Ólafsson | Aþena frá Þjóðólfshaga 1 | 7,88 |
2 | Jón Ársæll Bergmann | Harpa frá Höskuldsstöðum | 7,81 |
3 | Ásmundur Ernir Snorrason | Askur frá Holtsmúla 1 | 7,60 |
4 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Leynir frá Garðshorni á Þelamörk | 7,52 |
5 | Benjamín Sandur Ingólfsson | Pandóra frá Þjóðólfshaga 1 | 7,19 |
6 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | Kamma frá Margrétarhofi | 6,17 |