Danmörk Dagný hæst dæmd í Herning

  • 20. júlí 2026
  • Fréttir

Dagný frá Lækjamóti. Ljósmynd: Facebooksíða DI - avl og kåringer

Líf frá Slippen hlaut afkvæmaverðlaun

Um helgina fór fram kynbótasýning í Herning í Danmörku, dómarar voru þau Tom Buijtelaar, Elsa Mandal Hreggviðsdóttir og Marlise Grimm. Alls voru það 46 hross sem til sýningar mættu og af þeim voru 35 sýnd í fullnaðardómi.

Hæst dæmda hross sýningarinnar var Dagný frá Lækjamóti sem er sjö vetra gömul undan Ölni frá Akranesi og Hafdísi frá Lækjamóti, ræktandi og eigandi er Mona Olsson. Dagný hlaut 8,43 fyrir sköpulag þar á meðal 9,0 fyrir samræmi. Fyrir hæfileika hlaut hún einnig 8,43 þar á meðal 9,0 fyrir bæði samstarfsvilja og fegurð í reið. Sýnandi hennar var Caspar Logan Hegardt en hann sýndi flest hross á sýningunni alls sjö talsins.

Líf hlaut afkvæmaverðlaun

Á sýningunni var hryssan Líf frá Slippen heiðruð og hlaut afkvæmaverðlaun í úrvalsflokki (eliteklasse) með 8,10 í meðaleinkunn afkvæma. Ræktandi og eigandi Lífar er Jóhann Rúnar Skúlason. Líf er undan Garra frá Reykjavík og Andrá frá Skarði. Í afkvæmahópi hennar er meðal annars hinn þekkti stóðhestur og keppnishestur Evert frá Slippen, en hann hefur sjálfur hlotið 1. verðlaun fyrir afkvæmi, er hátt dæmdur í kynbótadómi og unnið marga glæsta sigra á keppnisvellinum. Hann var valinn stóðhestur ársins í Danmörku árin 2021, 2024 og 2025.

Dómsorð Lífar frá Slippen hljóma á þessa leið í íslenskri þýðingu:

„Afkvæmi Lífar frá Slippen eru með beina neflínu, vel reistan háls og gott samræmi. Liðir fóta eru meðal stórir og sinar mættu vera öflugri. Hófarnir eru efnismiklir. Afkvæmin er mjúk og rúm á tölti með háum fótaburði. Stökkið er ferðamikið og skrefmikið. Þau eru viljug, samstarfsfús og vel reist undir knapa.“

Hross dæmd í Herning raðað eftir aðaleinkunn
Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi Þjálfari
IS2019255119 Dagný frá Lækjamóti II 8.43 8.43 8.43 Caspar Logan Hegardt
DK2020200218 Fyrirmynd fra Dronninggård 8.39 8.13 8.22 Dennis Hedebo Johansen
NO2020111029 Svartur fra Fossan 8.41 7.96 8.12 Agnar Snorri Stefansson
DK2020100420 Hafþór fra Eyfjörd 8.44 7.92 8.11 Agnar Snorri Stefansson
DK2021200721 Víma fra Slippen 8.14 8.08 8.1 Jóhann Rúnar Skúlason
IS2019125538 Óðinn frá Ögn 8.04 8.12 8.1 Högni Fróðason
SE2019222011 Una från Vinkärgård 7.94 8.14 8.07 Caspar Logan Hegardt
SE2022218011 Hekla från Mosegården 7.93 8.13 8.06 Caspar Logan Hegardt
DK2020100571 Öxndal fra Slippen 8.15 8 8.05 Sigurður Óli Kristinsson
IS2015135716 Mímir frá Oddsstöðum I 8.4 7.85 8.04 Agnar Snorri Stefansson
DK2018200691 Rokkstjarna fra Gavnholt 8.02 7.98 7.99 Tekla Petersson
DK2020200603 Karla fra Bredahl 7.98 7.94 7.95 Kathrine Vittrup Andersen
DK2021200694 Sóldís fra Lindholm Høje 8.02 7.87 7.92 Elisabeth Sys Pilegaard
DK2020100076 Adam fra Søbjerg 8.47 7.61 7.91 Jóhann Rúnar Skúlason
DK2022100570 Moli fra Slippen 8.22 7.74 7.91 Jóhann Rúnar Skúlason
DK2019200527 Sara fra Teland 8.01 7.85 7.91 Steffi Svendsen
SE2017233908 Freydís från Heden 1 8.04 7.83 7.91 Caspar Logan Hegardt Hjalti Guðmundsson
DK2021200382 Lína fra Slippen 8.15 7.75 7.89 Jóhann Rúnar Skúlason
DK2019200594 Næla fra Teland 8.01 7.77 7.85 Steffi Svendsen
DK2018200144 Iðunn fra Skovhuset  8.04 7.72 7.83 Caspar Logan Hegardt
DK2021100639 Þokki fra Lindholm Høje 8.01 7.7 7.81 Hlynur Pálsson
DE2019234512 Áradís – 7.9 7.71 7.78 Steffi Svendsen
DK2018100566 Karíus fra Hovumgård 7.7 7.78 7.76 Anne Kathrine Carlsen Mathilde Graugaard Jakobsen
DK2021100535 Seifur fra St. Kirkebjerg 8 7.62 7.75 Jón Stenild
DK2019200014 Gáskadís fra Kelsbjerg 8.19 7.48 7.73 Kristian Tofte Ambo
SE2020118006 Brilljant från Mosegården 7.71 7.72 7.72 Caspar Logan Hegardt
DK2019200104 Filippa fra Teland 7.93 7.57 7.7 Steffi Svendsen
DK2017200669 Perla fra Dalhus 7.92 7.5 7.65 Signe Hjort
SE2020118029 Náttfari från Mosegården 7.74 7.52 7.6 Caspar Logan Hegardt
DK2014200283 Álfadís fra Vivildgård 8.18 7.18 7.53 Mathilde Ditlev Staun Hansen
IS2017187116 Gammur frá Vesturkoti 7.61 7.4 7.47 Michelle Munkholm Andersen
DK2017200361 Fjóla fra Ringeby 7.94 7.16 7.43 Anne Kathrine Carlsen
DK2018200475 Freyja fra Bregnebakken 7.74 7.17 7.37 Vibe Aagaard Nielsen
DK2018200432 Hrísla fra Dalhus 8.06 6.98 7.36 Signe Hjort
DK2019200523 Dröfn fra Stensbæk 7.82 6.6 7.03 Signe Hjort
CH2021103130 Ágústínus vom Ibikonhof 8.25 Steffi Svendsen
DK2017200262 Fagra-Snót fra Ahl 7.91 Anne Kathrine Carlsen
IS2019284087 Hávör frá Eylandi 7.72 Lotte Aastradsen
IS2021165609 Korpur frá Hrafnagili 8.1 Högni Fróðason
DK2020100024 Maximus fra Nors 8.1 Hans-Christian Løwe
DK2015100035 Ópus fra Alheden 8.17 Signe Hjort
DK2019200653 Sigríður fra Flugsæl 7.34 Lenette Bech Lenette Bech
IS2017287447 Steiney frá Langholtsparti 8 Majbrit Maag Sahlholt Lauritsen
DK2022200351 Svala fra Kaas 7.88 Mette Eriksen Gulbil
DK2022200832 Trausta fra Kratbjerggaard 7.41 Maia Marie Bredgaard Husum
DK2020200397 Veira fra Sundsted Huse 7.26 Nanna Larsen

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link